- Advertisement -

Hversu frjáls er Mogginn?

Fjölmiðlar:

Í Reykjavíkurbréfi Moggans í blaði morgundagsins er fjallað um bága stöðu fjölmiðla og háa ríkisstyrki til stjórnmálaflokka. Lesum einn hluta greinarinnar, þar sem augunum er beint að fjölmiðlum:

„Fjölmiðlar hafa ekki síst það hlutverk að fjalla um þau þjóðfélagsmál sem snúa að starfi kjörinna fulltrúa almennings. Umfjöllun fjölmiðla um þau mál er ein af forsendum þess að lýðræðið geti virkað sem skyldi, að almenningur fái upplýsingar um það sem er að gerast, geti dregið sínar ályktanir af því og myndað sér skoðanir. Til þess þarf fjölmiðla sem hafa getu til að sinna þessu hlutverki. Ein forsenda þess er að þeir hafi nægt fjárhagslegt bolmagn til þess að halda úti öflugri ritstjórn sem getur fylgst með helstu málum og miðlað upplýsingum um þau til almennings.“

Það verður að segjast að Mogginn er „ekki frjáls fjölmiðill“. Öllum er ljóst að eigendur Moggans borga mikla peninga til að styðja við og standa undir taprekstrinum. Þar með er frelsið farið. Eins og sást svo vel þegar barist var í Evrópusambandskosningunum í lok ágústmánaðar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Útgáfan tapar einni milljón og kannski tveimur hvern dag. „Útgerð“ Moggans fær þá peninga frá tryggum eigendum sínum sem telja sig þurfa að eiga „hliðhollan“ fjölmiðil. Meðan svo er, er Mogginn ekki frjáls fjölmiðill.

-sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: