Alþingi.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp gegn vændi á Íslandi. Hún sagði:
„Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum. Mig langar til að hefja mál mitt á því að ræða aðeins um vændismarkaðinn á Íslandi því að ég tel að sú vitneskja sem við búum yfir um vændismarkaðinn gefi okkur ástæðu til að hafa áhyggjur. Sumarið 2025 áætlaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að um 50 konur væru í vændi í Reykjavík starfandi á hverjum tíma. Í sérstakri aðgerð lögreglu fundust um 460 virkar vændisauglýsingar á einni vefsíðu. Í nýlegri umfjöllun Kveiks í apríl síðastliðnum kom jafnframt fram að hundruð kvenna væru auglýstar í vændi hér á landi. Þar var m.a. sýnt frá því hvernig vændiskaupendur streymdu inn og út af gististað í Reykjavík á öllum tímum sólarhringsins.
Ég ætla líka að leyfa mér að nefna að það er athyglisvert að leiða hugann að kaupendunum. Í öllum þeim málum sem voru til meðferðar og afgreidd hjá lögreglu árið 2020 voru kaupendur karlar og fjórir af hverjum fimm íslenskir ríkisborgarar þannig að vændi er ekki fjarlægur veruleiki á Íslandi. Við þurfum að horfast í augu við þessa stöðu og bregðast við henni. Hvers vegna segi ég það? Sú ríkisstjórn sem í dag er starfandi tekur það verkefni alvarlega að beina kastljósinu og aðgerðum gegn skipulögðum brotahópum. Þar sem vændi þrífst, þar þrífst önnur brotastarfsemi. Ætlum við okkur að ná árangri í skipulagðri brotastarfsemi er ekki hægt að undanskilja þennan markað, ef maður vill kalla hann það, því að þeir sem flytja konur og stúlkur hingað inn til vændis flytja líka inn fíkniefni og eru í annarri ólöglegri starfsemi.

Vændisbrotin, vændiskaupin, eru staðsett í kynferðisbrotakafla hegningarlaganna. Það er af ástæðu. Þessi brot eru samkvæmt löggjafanum til lengri tíma skilgreind sem kynferðisbrot. Vændiskaup eru líka, eins og ég segi, hluti af stærri veruleika þar sem mansal, misneyting og skipulögð brotastarfsemi þrífst í skjóli eftirspurnar eftir vændi.“
Dómsmálaráðherra sagði ögn síðar í ræðu sinni:
„Ég er því að leggja hér til að vændiskaup hætti að njóta sérmeðferðar innan réttarkerfisins. Þegar kaup á vændi var gert refsivert árið 2009 var markmiðið með því m.a. að draga úr eftirspurn eftir vændi og vinna gegn mansali. Þessi markmið hafa ekki náðst fram vegna þess hvernig úr þessum málum hefur verið unnið innan kerfisins með afgreiðslu þeirra sem sektarmála. Þannig að 17 árum síðar er ljóst að það þarf að gera betur. Vændi er enn þá viðvarandi vandamál á Íslandi og raunar ört stækkandi og lögreglan telur í dag að það sé að mestu drifið áfram af skipulagðri glæpastarfsemi. Sem ráðherra dómsmála sem tek það verkefni alvarlega að vinna gegn skipulagðri brotastarfsemi finnst mér þetta heillavænlegt skref að taka og sem ráðherra jafnréttismála finnst mér öskrandi augljóst að stíga þetta skref.“