Stjórnmál:
Sigurnón Magnús Egilsson skrifar:
Herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og þjóðhöfðingi til tuttugu ár, hefur gengið of langt. Hann steig í drullupytt. Svo sem ekki þann fyrsta á langri ævi. Eitt er að vera ósammála en að grípa til óorða þegar honum finnst að hann þurfi að taka hraustlega til máls.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, fékk að heyra það óþvegið frá forsetanum fyrrverandi. Í einu og sama viðtalinu sagði ÓRG hana vera með „götustelpustíll“ og að hún sé að auki „veruleikafirrt“.
Þekkt er þegar hann sem þingmaður sagði þáverandi forsætisráðherra vera haldinn skítlegu eðli. Það var í hita leiksins. Maður á hans aldri á ekki og reyndar má ekki tala til fólks eins og hann talaði til Þorgerðar Katrínar. Það hæfir ekki fyrrum forseta. Og reyndar ekki neinum.