- Advertisement -

Björn Bjarna sakar Kristrúnu um fáfræði

Stjórnmál:

Brot úr grein í Mogganum þar sem Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins, lætur hugann reika.

Þetta kemur fram í samtali við Björn á vettvangi Spursmála Morgunblaðsins, þar sem hann ræðir nýútkomna bók sína um aðdraganda og afleiðingar þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst síðastliðinn.

„Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, telur að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi nýtt sér fáfræði Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um sögu Evrópumálsins til að koma þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið inn í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Hann segir Viðreisn nú standa frammi fyrir þeirri staðreynd að þjóðin hafi hafnað því máli sem flokkurinn var stofnaður utan um.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Björn segir að atkvæðagreiðslan hafi verið óvenjuleg að því leyti að þjóðin hafi verið kölluð til að taka afstöðu til stefnumáls eins stjórnmálaflokks, án þess að fyrir lægi þingmeirihluti fyrir aðild að Evrópusambandinu.

Hann rifjar upp að Þorgerður Katrín hafi sjálf gert lítið úr mikilvægi Evrópumálsins eftir að hún tók við formennsku í Viðreisn.

„Hún sagði að þetta mál væri nú ekkert lengur okkar aðalmál og hún var búin að sparka því svolítið út af pólitíska leikvellinum,“ segir Björn.

Síðan hafi annað komið á daginn þegar ríkisstjórnarsamstarfið komst á koppinn í árslok 2024.

„Ég tel að hún hafi nýtt sér, má ég segja, fáfræði Kristrúnar Frostadóttur um söguna og hvernig þetta allt bar að, til þess að koma þessu inn í stjórnarsáttmálann.“

Björn segir þetta eina af ástæðum þess að hann ákvað að skrifa bókina. Hann hafi viljað skrásetja atburðarásina og setja hana í sögulegt samhengi.“

Greinin er nokkru lengri. Þar er fjallað um nýja bók Björns um Evrópumálið.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: