- Advertisement -

Mikil og vaxandi vantrú á hugmyndafræði Hafrannsóknastofnunar

Stjórnmál:

Sigurjón Þórðarson alþingismaður sagði á Alþingi fyrr í dag:

„Í gærkvöld hélt Flokkur fólksins opinn fund á Kænunni í Hafnarfirði. Fundurinn var fjölsóttur og fundargestir lögðu fram spurningar af ýmsu tagi, m.a. um kjarabætur fyrir elli- og örorkulífeyrisþega, leigumál, skólamál, málefni trans fólks, hnefaleika, sjávarútvegsmál og svo auðvitað fiskveiðiráðgjöf Hafró sem fékk falleinkunn á fundinum. Fiskveiðiráðgjöfin er einmitt stærsta byggða- og efnahagsmál þjóðarinnar.

Á fundinum kom fram mikil vantrú á hugmyndafræði Hafrannsóknastofnunar og spurt hvort stofnunin gengi sjálfala. Svo er auðvitað ekki. Atvinnuveganefnd þingsins hefur til að mynda beint fjölmörgum gagnrýnum spurningum til stofnunarinnar, t.d. um stöðugt endurmat hennar á stofnstærð þorsksins aftur í tímann og óskiljanlegar forsendur ráðgjafar vegna grásleppuveiða.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Sigurjón Þórðarson alþingismaður:
Það er miklu meira magn en fyrirhugað er að veiða á þessu ári af þorski.

Ég hef óskað eftir því að haldinn verði opinn fundur í atvinnuveganefnd þar sem fulltrúar Hafró verði til svara. Það hefur komið fram í þingskjölum að Hafró hafi endurmetið þorskstofninn samkvæmt mælingum fyrir árið 2019 og telji stofninn hafa verið 270.000 tonnum minni en hann var mældur það ár. Það er miklu meira magn en fyrirhugað er að veiða á þessu ári af þorski.

Ástæðan fyrir endurmatinu er sögð vera að mælingar Hafró hafi gefið til kynna að þorskstofninn hafi minnkað verulega frá árinu 2018 þrátt fyrir aðhaldssama aflareglu, þannig að samdrátturinn verður ekki skýrður með ofveiði.

Sú faglega gagnrýni sem hefur verið beint að ráðgjöfinni gengur í stuttu máli út á að náttúruleg afföll, þ.e. dauði fisks af öðrum ástæðum en veiðum, séu ekki föst prósentutala heldur mjög breytileg. Í stað þess að fara yfir þessi rök hefur stofnunin ítrekað breytt og endurmetið fyrri stofnstærðarmælingar eins og fyrr greinir.

Nú eru komnar fram nýjar rannsóknir á þorskstofninum vestan Atlantsála sem staðfesta faglega gagnrýni á vinnubrögð Hafró. Þær gefa til kynna að náttúruleg afföll geti verið allt að 60% af árgöngum. Niðurstöðurnar benda eindregið til þess að rétt sé að endurskoða núverandi aflareglu í þorski.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: