- Advertisement -

Silfurskeiðar fara vel við silfurföt

„Fjárfestar“ vilja ekkert fremur en fá að hafa „annarra manna fé“ umleikis.

Ragnar Önundarson skrifar:

Veitustofnanir (rafm., kalt og heitt vatn, símalínur, oþh.) finnst mér að almenningur og stofnanir hans, ríkissjóður, sveitarfélög og etv. lífeyrissjóðir, eigi að eiga. Ef þær lenda í höndum einkaaðila eru þeir í auðveldri aðstöðu til að hesthúsa gróða með smávægilegum verðbreytingum. Sú óheillaþróun er hafin að við kaupum orku og neysluvatn af fjárfestum í einkasöluaðstöðu.

Það sem við nefnum „greiðslumiðlun“ er í raun af sama toga og hún er beintengd innistæðum á bankareikningum. Ef í harðbakkann slær mun ríkið alltaf þurfa að vernda hana.  Þetta er ein ástæða þess að ríkið mun alltaf þurfa að vera bakhjarl banka, beint ef illa fer og óbeint með löggjöf og eftirliti til að stuðla að því að svo fari ekki.

„Fjárfestar“ vilja ekkert fremur en fá að hafa „annarra manna fé“ umleikis.  Verum ekki auðtrúa og hrekklaus, efumst þegar við heyrum fagurgalann um ,,frjálsa samkeppni og markaði, frjálst framtak og samningsfrelsi” o.s.frv.  Mannseðlið, með sinni hömlulausu græðgi, hefur ekkert breyst síðan 2007. 

Fjárfestar vilja alltaf fákeppni og helst komast í einokunaraðstöðu, hún er „paradís“ þeirra.  Stóru vonbrigðin með aðildina að EES snúa að þessu:  Evrópsk samkeppnislög ganga út frá virkum mörkuðum, sem varla finnast hér.  Samkeppniseftirlitið er alltaf að samþykkja yfirtökur og samruna. Stjórnendur þess skilja ekki grundvallaratriðin, þeir hafa brugðist. Þeir skilja td. ekki eftirfarandi:

Á Íslandi eru þrír bankar allsráðandi, Kvika er svo lítill banki að hann nær ekki að veita umtalsverða samkeppni og starfar þannig í skjóli fákeppninnar. Risarnir þrír mynda því fákeppnismarkaðinn. Arion er í eigu erlendra vogunarsjóða, sem eru þróaðasta form græðginnar í veröldinni. Ef Íslandsbanki verður seldur munu vextir og gjaldskrá Arion banka verða viðmiðun hans í fákeppninni. Samkeppnisreglur ESB banna ríkisstofnunum verðsamkeppni, sem kallast þá „undirboð“. Þetta hugtak á eingöngu við um virka samkeppnismarkaði, sem ekki finnast hér á landi. Löggjöfin kemur að utan og tekur ekkert tillit til aðstæðna hér.

Eftir að Íslandsbanki hefur verið færður einkaaðilum „á silfurfati“ munu innlendir „fjárfestar“ slást í lið með erlendu vogunarsjóðunum og fleyta rjómann ofan af. Silfurskeiðar fara vel við silfurföt, óneitanlega.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: