- Advertisement -

Kári skrifar: „Kæri Sigmundur, þú ert forsætisráðherra…“

Samfélag Kári Stefánsson birti rétt í þessu, á Facebook, bréf til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson„Kæri Sigmundur, þú ert forsætisráðherra og heilbrigðiskerfi landsins er í rusli. Þú berð svo sannarlega ekki ábyrgð á öllu ruslinu en þú berð ábyrgð á því hvernig við bregðumst við því núna. Til þess að geta brugðist við því á myndarlegan hátt þarftu stuðning fólksins í landinu vegna þess að það sem er látið í heilbrigðiskerfið verður ekki notað annars staðar. Þess vegna hljóta það að teljast mistök af þinni hálfu að taka ekki undirskriftarsöfnuninni opnum örmum í stað þess að agnúast út í hana. Ég er líka á því að það hafi verið mistök af minni hálfu að fara að munnhöggvast við þig og draga með því athyglina frá því sem máli skiptir sem er að heilbrigðiskerfi landsins er í rusli og við þurfum að veita miklu meira fé til þess. Það vantar betri tæki og ný, það vantar meira af nýjum og betri lyfjum, það vantar fleira fagfólk og betra húsnæði. Við þurfum að losna við biðlistana og við þurfum að koma sjúklingum af göngum inn á sjúkrastofur. Við þurfum að minnka það hlutfall af kostnaði af heilbrigðisþjónustu sem sjúklingar greiða úr eigin vasa. Það er fáránlegt að sjúklingar sem koma meiddir eða sjúkir inn á slysavarðstofu þurfi að byrja á því að draga upp kreditkort. Ég held að við séum örugglega sammála um þetta. Þess vegna bendi ég þér á þann möguleika að skrifa undir og fá síðan tækifæri til þess að verða sá forsætisráðherra sem endurreisir heilbrigðiskerfi landsins.

Sameiginleg velferð þjóðarinnar allrar hlýtur að sitja í fyrirrúmi.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: