- Advertisement -

Alvarlegt umferðarslys á þjóðvegi 1, vestan Kúðafljóts

Lögreglan á Suðurlandi greinir fráþví að „viðbragðsaðilar á Suðurlandi voru kallaðir til vegna alvarlegs umferðarslyss á Þjóðvegi 1, vestan Kúðafljóts um kl. 15:50 í dag, þar sem bifreiðar úr gagnstæðum áttum rákust saman.“

Í tilkynningunni segir einnig að „þyrla LHG er á leið á vettvang til flutnings á slösuðum og mun taka við af sjúkrabíl sem lagður er stað til móts við þyrluna.

Vegurinn er lokaður en hjáleið opin um Hrífunes.“

Lögreglan gefur ekki upp aðrar upplýsingar enda „ljóst að rannsókn mun taka einhvern tíma en að henni koma, auk lögreglunnar á Suðurlandi, rannsóknarnefnd samgönguslysa og tæknideild Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: