
Flokksþing Framsóknar árið 2009 var um margt sérstakt. Þar var samþykkt með góðum meirihluta að stefnt skuli til Evrópu með umsókn um aðild að sambandinu. Halldór heitinn Ásgrímsson hafði unnið að þessu í sinni formannstíð.
Á flokksþinginu 2009 voru formannsskosningar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var kjörinn formaður. Hann fékk Evrópuáhugann í vöggugjöf.
Hvað varð til þess að flokkurinn snarsnérist í afstöðu sinni aðeins tveimur árum síðar, það er á flokksþinginu 2011, og hefur síðan, ekki síst Sigmundur Davíð, aldeilis skipt um skoðun. Hvers vegna?
Þorsteinn Sæmundsson, sem seinna var í þingliði Framsóknar og svo Miðflokksins segir í samtali við Miðjuna:
„Samþykktin 2009 byggðist á viðunandi niðurstöðu varðandi landbúnað og sjávarútveg. Árið 2010 flengdi Stefan Fühle stækkunarstjóri ESB Össur Skarphéðinsson eftirminnilega á blaðamannafundi og hamraði það heim að engar undanþágur væru í boði fyrir umsóknarríki. Minnir að það hafi átt þátt í að frá 2011 var framsókn andvíg aðild (samþykkt á landsfundi með yfirburðameirihluta) og Miðflokkur alla tíð frá stofnun 2017, sagði Þorsteinn Sæmundsson.