- Advertisement -

ff7.is: Höfum greitt easyJet nærri 400 milljónir í styrki á tveimur árum

Samt sem áður þá sýna tölur Hagstofunnar að gistinóttum erlendra ferðamanna fækkaði almennt á Norðurlandi í nóvember og desember.

ff7.is.

Umræðan/ff7.is: Þessa fínu frétt er að finna á ff7.is:

Farþegum í áætlunarfluginu milli Akureyrar og Bretlands fjölgaði um fjórðung í byrjun vetrar. Þessi viðbót skilar sér þó ekki inn á hótelin á Norðurlandi.

Þótt ódýrasti flugmiðinn með Easyjet frá Akureyri til Bretlands í næsta mánuði kosti rétt um 2 þúsund krónur (14 evrur) fær flugfélagið um fjórum sinnum hærri upphæð fyrir sætið þegar uppi er staðið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ástæðan er sú að íslenska ríkið, í gegnum Flugþróunarsjóð, styður við útgerð breska flugfélagsins á Akureyri. Styrkurinn fyrir síðustu tvo vetur og þann sem nú er senn á enda nemur í heildina hátt í 400 milljónum króna.

Það jafngildir um 6.500 krónur á hvern farþega ef reiknað er með að farþegafjöldinn aukist áfram í vetur líkt og gerðist í byrjun vetrar.

Grafið er fengið á vef ff7.is.

Þotur Easyjet fljúga tvær ferðir í viku til Akureyrar frá London og jafn oft frá Manchester en hlé er gert á fluginu frá lokum apríl og fram í enda október. Tölur breskra flugmálayfirvalda sýna að í heildina nýttu 45.336 farþegar sér áætlunarferðirnar til Akureyrar frá október 2023 og fram í árslok 2025.

Þarna er hver farþegi talinn bæði við brottför frá Bretlandi og eins við komuna. Hver og einn einstaklingur er því í raun tvítalinn.

Tölurnar sýna að í byrjun þessa vetrar varð töluverð aukning því farþegunum fjölgaði um 2 þúsund eða 26 prósent í nóvember og desember miðað við sömu mánuði árið 2024.

Það verður hins vegar ekki vart við þessa þróun mála í tölum Hagstofu Íslands því samkvæmt þeim fjölgaði gistinóttum Breta á hótelum á Norðurlandi um aðeins 1 prósent í nóvember og desember í fyrra.

Grafið er fengið á vef ff7.is.

Spurður út í þessa þróun þá segir Hjalti Þórarinsson hjá Markaðsstofu Norðurlands að hlutfall farþega í þotum Easyjet, sem byrja ferðalagið á Akureyri, sé um helmingur samkvæmt upplýsingum frá breska flugfélaginu.

„Þetta þýðir að fjölgun ferðamanna frá Bretlandi ætti að vera í sama hlutfalli og fjölgun nýttra sæta í flugvélunum,“ bætir Hjalti við.

Hann segir að mögulega velji Bretarnir aðra gistikosti en hótel en ekki er hægt að ganga úr skugga um það þar sem Hagstofan hefur ekki birt tölur yfir gistinætur á gistiheimilum, íbúðum eða farfuglaheimilum.

Það var þó töluvert af lausum hótelherbergjum á Norðurlandi í byrjun vetrar því herbergjanýtingin var rétt 28 prósent í nóvember og 17 prósent í desember. Tölur Hagstofunnar bjóða aðeins upp á upplýsingar fyrir allt Norðurland, það er t.d. ekki hægt að skoða nýtingu á hótelum á Akureyri sérstaklega.

Ekki bara Bretar og Íslendingar í þotunum

Í London og Manchester býr auðvitað fólk frá öllum heimsins hornum og því ekki aðeins von á breskum ferðamönnum til Akureyrar með Easyjet. Leiðsögumenn á Norðurlandi hafa einmitt, að sögn Hjalta, talað um að töluvert sé um að ferðamenn frá öðrum þjóðum nýti sér ferðir Easyjet. Samt sem áður þá sýna tölur Hagstofunnar að gistinóttum erlendra ferðamanna fækkaði almennt á Norðurlandi í nóvember og desember. Þarna verður því ekki heldur vart við þessa viðbótarfarþega sem sjást í tölum breskra flugmálayfirvalda.

Það verður því að bíða ítarlegri talna frá Hagstofunni til að sjá áhrif aukinna vinsælda Akureyrarflugs Easyjet á gistigeirann á Norðurlandi.

Styrkurinn ekki til lengri tíma

Helsti prófsteinninn á þessa útgerð Easyjet verður hins vegar þegar ríkisstyrkurinn verður lækkaður eða felldur niður. Í fluggeiranum eru svona styrkir vanalega bundnir við ákveðinn árafjölda og eins er upphæðin sem Easyjet fær í hærri kantinum miðað við það sem þekkist í fluggeiranum samkvæmt því sem FF7 kemst næst.

Fargjöld í millilandaflug frá Akureyri gætu því hækkað með lækkandi styrk sem hefur þá áhrif á eftirspurnina.

Í umfjöllun FF7 um ríkisstyrkinn til Easyjet í árslok 2025 var talað um nærri 8 þúsund króna styrk á hvern farþega. Sá útreikningur byggði á færri farþegum því þá lágu ekki fyrir tölur fyrir nóvember og desember sem sýndu fram á töluverða aukningu sem fyrr segir. Einnig var gengi evru sterkara þá en það er í dag og er styrkurinn greiddur út í þeirri mynt.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: