Þetta er ekki bara ein óheppileg mæling. Þetta er mynstur.
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins.

Umræðan: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði:
„Það er mikið áhyggjuefni að verðbólgan mælist áfram 5,2%. Þegar verðbólgan jókst í síðasta mánuði sagði ríkisstjórnin að þetta væri tímabundið, komið til vegna einskiptisaðgerða og reyndi meira að segja að kenna öðrum um ástandið. Hverjar verða afsakanirnar núna?
Á sama tíma hækkar matur og drykkur áfram og atvinnuleysi hefur hækkað verulega á valdatíma ríkisstjórnarinnar. Þegar Kristrún Frostadóttir tók við sem forsætisráðherra fyrir 14 mánuðum var atvinnuleysi 3,8% en er nú 7,3%.
Þetta er ekki bara ein óheppileg mæling. Þetta er mynstur. Og enn ein staðfestingin á því að plan ríkisstjórnarinnar er ekki að virka.“