- Advertisement -

Koma skömmtunarseðlarnir aftur?

Sigurjón Magnús Egilsson:

Með tvo sprenglærða hagfræðinga í ríkisstjórn virtust sem framundan væru bjartari tímar. Nei, ekki aldeilis. Vonbrigðin eru ólýsanleg.

Efnahagur Íslands, sama hvaða fólk ber ábyrgð á stöðunni á hverjum tíma, er ekki eins og annarra landa.

Með tvo sprenglærða hagfræðinga í ríkisstjórn virtust sem framundan væru bjartari tímar. Nei, ekki aldeilis. Vonbrigðin eru ólýsanleg. Þau fá ekki við neitt ráðið. Eðlilega fennir hratt og mikið á loforð ríkisstjórnarinnar.

Hér er mikil verðbólga og vextirnir eru eftir því. Svo virðist sem bæði Daði Már og Kristrún Mjöll hafi komið sér vel fyrir á áhorfendaðöllunum og horfi á það versta gerast. Ekki hægt og hljótt. Nei, með braki og brestum. Því miður.

Vonir okkar og væntingar eru farnar. Eldsneyti hefur hækkað víða um heim. Ríkisstjórnir landa með alvöru efnahag hafa brugðist við og lækkað gjöld á bensín og olíu. En ekki við. Við erum að horfa á það versta gerast. Eins og venja er til.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Skömmtunarseðill. Þessi mun vera frá Vestmannaeyjum.

Efnahagur Íslands, sama hvaða fólk ber ábyrgð á stöðunni á hverjum tíma, er ekki eins og annarra landa. Verði stigið eitt hænufet til að dempa höggin sem á okkur dynja, fer allt til verri vegar. Vegna vanmáttar þjóðarinnar og fulltrúa hennar.

Óþarfi er að nefna að við erum ein þjóða með verðtryggingu. Meira að segja okkur helstu vinaþjóðir og nágrannar þekki hvorki haus né sporið á verðtryggingunni. Við verðum að halda neyslu okkar í lágmarki ef ekki á enn og aftur að fara á versta veg.

Á krepputímanum fyrir um einni öld voru skömmtunarseðlar, sem og síðar. Þá gat fólk ekki eytt um efni fram og keyrt allt í kaf. Er tími þeirra að koma aftur? Að hver fjölskylda fær þá skömmtunarseðla fyrir helstu nauðsynjum og ekkert umfram það. Er sú leiðin okkar?


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: