Umræðan: Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifar:
„Nú er mikið rætt um Reykjavíkurkortið – Frægasta kreditkort landsins, sem er vel. Minna og nánast ekki neitt er rætt um grafarþögn forsvarsmanna sveitarfélaga sem greinilega hafa verið hlunnfarin hvað varðar hafnargjöld með undirverðlagningu á loðnu.
Þessi þögn bendir til þess að þeir forsvarsmenn sem fóru mikinn gegn leiðréttingu veiðigjalda fyrir ári síðan séu annað hvort vopn- eða kjarklausir í að sækja leiðréttingu aflagjalda í samræmi við raunverðmæti aflans.
Er ekki komið að því að þeir djörfu sveitarstjórnarmenn sem fóru mikinn hér um árið fyrir hönd sveitarfélaganna séu spurðir út í málið?“