- Advertisement -

Gerði Valdimar illa í bælið sitt?

Stjórnmál: Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknar í Hafnarfirði, er í furðulegri stöðu. Framsókn bætti við sig einum bæjarfulltrúa. Sigurviss Valdimar bæjarstjóri var hreykinn um of. Hann handsalið meirihlutaviðræður við allt og alla.

Auðvitað spurðist út hvað Valdimar hafði gert. Enginn kættist við framgöngu Valdimars. Nú segir Orri Björnsson, forystumaður Sjálfstæðisflokksins í Firðinum fallega, að hefði Valdimar ekki gert það sem hann gerði, þá væri hann eflaust bæjarstjóri áfram. Sem augljóslega var hans stærsti draumur.

Upp komst um Valdimar. Allir vita hvað hann gerði. Valdimar og Framsókn eru í bágri stöðu eftir að hafa unnið sætan sigur í kosningunum.

Ofmat Valdimars á eigin stöðu varð honum að falli. Sennilega er hann persónuega að missa af draumastarfinu, að vera áfram bæjarstsjóri.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: