Stjórnmál Einar Geir Þorsteinsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði var með bókun á fyrsta fundi blharstjórnar. Í bókuninni segir t.d.:
„Þá fagnar Miðflokkurinn því að móttaka hælisleitenda sé nú nefnd í málefnasamningi í fyrsta sinn. Sú málefnalega og nauðsynlega umræða sem Miðflokkurinn hefur staðið einn fyrir hefur þegar skilað árangri. Nú þarf hins vegar að fylgja orðum eftir með skýrum aðgerðum. Miðflokkurinn mun á kjörtímabilinu krefjast skýrra svara og fylgja því fast eftir að jafnræðis sé gætt milli sveitarfélaga, ríkið fjármagni málaflokkinn að fullu og að skýr mörk verði sett um getu og innviði sveitarfélagsins. Hafnarfjörður hefur gert nóg í þessum málaflokki.“
Hér má sjá alla bókunina:
Í vikunni fór fram fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar og lagði Einar Geir Þorsteinsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði, fram eftirfarandi bókun um málefnasamning hins nýja meirihluta bæjarstjórnar:
Miðflokkurinn fagnar því að hækkun heimgreiðslna til foreldra að loknu fæðingarorlofi, sem var eitt af kjarnamálum flokksins í kosningabaráttunni, hafi verið tekin upp í málefnasamning nýs meirihluta. Miðflokkurinn lagði til 250 þúsund króna mánaðargreiðslu en meirihlutinn boðar 230 þúsund krónur. Það er fagnaðarefni, enda telur Miðflokkurinn brýnt að hagsmunir fjölskyldna í bænum séu í forgrunni á kjörtímabilinu.
Þá fagnar Miðflokkurinn því að móttaka hælisleitenda sé nú nefnd í málefnasamningi í fyrsta sinn. Sú málefnalega og nauðsynlega umræða sem Miðflokkurinn hefur staðið einn fyrir hefur þegar skilað árangri. Nú þarf hins vegar að fylgja orðum eftir með skýrum aðgerðum. Miðflokkurinn mun á kjörtímabilinu krefjast skýrra svara og fylgja því fast eftir að jafnræðis sé gætt milli sveitarfélaga, ríkið fjármagni málaflokkinn að fullu og að skýr mörk verði sett um getu og innviði sveitarfélagsins. Hafnarfjörður hefur gert nóg í þessum málaflokki.
Miðflokkurinn saknar þess að sjá raunverulega stefnu í skólamálum. Fræðslu- og uppeldismál eru stærsti kostnaðarliður bæjarins, yfir 25 milljarðar króna á ári, og samningurinn segir ekkert um innihald kennslu, mælanlegan námsárangur eða gagnsæi gagnvart foreldrum. Samningurinn gefur til kynna að langt sé á milli þessara þriggja flokka í skólamálum og að þeir hafi leyst þann ágreining með því að segja ekkert. Við getum ekki látið stærsta málaflokk sveitarfélagsins óáreittan í fjögur ár. Miðflokkurinn mun leggja fram tillögur um skólamál á kjörtímabilinu og meirihlutinn mun þurfa að taka afstöðu.
Miðflokkurinn vill einnig benda á að í samningnum er að engu farið í nokkur kosningamál sem snerta daglegt líf Hafnfirðinga. Ekkert er sagt um hvort meirihlutinn ætli að endurskoða þéttingarstefnuna sem hefur vakið almenna óánægju meðal íbúa. Ekkert er sagt um afnám hámarks á bílastæði við nýbyggingar. Þetta eru mál sem Miðflokkurinn mun halda á lofti.
Að lokum beinir Miðflokkurinn því til meirihlutans að nýta yfirstandandi endurskoðun samgöngusáttmálans til að verja hagsmuni Hafnarfjarðar af hörku. Krefjast verður skýrrar afstöðu til Borgarlínunnar, sem er eitt dýrasta og umdeildasta innviðaverkefni höfuðborgarsvæðisins en er hvergi nefnd á nafn í málefnasamningnum. Miðflokkurinn leggur til að meirihlutinn boði til íbúakosningar meðal Hafnfirðinga um framtíð samgöngumála í bænum, þar á meðal varðandi Borgarlínuna.
Miðflokkurinn mun starfa af ábyrgð, festu og málefnalegri einurð á kjörtímabilinu, hrósa því sem vel er gert en veita kröftugt aðhald og krefjast gagnsæis í öllum þeim málum sem snerta íbúa Hafnarfjarðar.