„…og sýna auðvitað sjómannastéttinni og fjölskyldum sjómanna algera vanvirðu með því að boða hér til þingfundar.“
Jón gunnarsson.
Alþingi: „Ég hafði bara ekki áttað mig á því fyrr en seint í gærkvöldi að til stæði að funda hér í dag á hátíðarhelgi sjómanna. Það hefur verið samkomulag um það síðan sjómannadagurinn var settur fyrst árið 1938 á Ísafirði og í Reykjavík og haldinn hátíðlegur að það væri ekki fundað á þessum degi, á þessari helgi. Það er verið að brjóta blað í sögu þingsins og sýna auðvitað sjómannastéttinni og fjölskyldum sjómanna algera vanvirðu með því að boða hér til þingfundar. Auðvitað eru margir þingmenn, sérstaklega af landsbyggðinni, farnir til síns heima til að taka þar þátt í hátíðahöldum sem eru í flestum bæjum og þorpum um allt land.
Ég vil skora á hæstvirtan forseta að fresta þessum fundi og leyfa okkur að fara og taka þátt í því sem á að vera númer eitt þessa helgi, að sýna sjómönnum og fjölskyldum þeirra þá virðingu sem vera ber.“
Þetta sagði Jín Gunnarsson Sjálfstæðisflokki á Alþingi á föstudaginn var. Ætli vinnuskylda þingmannsins hafi skemmt fyrir sjómönnum landsins, eins og Jón virðist halda. Alveg örugglega ekki. Að Jón geti ekki unnið á föstudegi vgna þess að sjómenn skemmtu sér og sínum á laugardag og sunnudag. Klárlega ekki.
Jón hefur hingað að til hallað sér frekar að útgerðinni en hitt. Hafi hann bara skammir fyrir hversu mikið hann ofmetur eigin stöðu í samfélaginu.