Stjórnmál: Ari Edwald beit á agnið og gerðist varadekk Hildar Björnsdóttur borgarstjóra. Hann ætlar að þiggja að verða næsti stjórnarformaður Orkuveitunnar. Nú vita Einar Þorsteinsson og Björg Magnúsdóttir að þau komast ekki upp með neitt múður.
Auðvitað og eðlilega reynir ekki á slíkt á fyrstu vikum samstarfsins. Þau búa samt við að Miðflokkurinn er á hliðarlínunni. Tilbúinn til að koma inn á. Sævar Freyr Þráinsson fagnar opinberlega ákvörðun Ara. Ég starfaði með báðum hjá 365. Fyrst með Ara og síðar með Sævari. Ólíkir menn.
Leikur Hildar Björnsdóttur er vel skiljanlegur. Hún sér til þess að hún hefur styrkt eigin stöðu mjög mikið. Hún tryggir að þurfa ekki að hlusta eitthvert múður eða ekkert kjaftæði. Ari er á hliðarlínunni. Tilbúinn í startblokkunum.