
Sigurjón Magnús Egilsson:
Eina sem getur komið í veg fyrir það er að forystan breyti um kúrs. Það stendur bara ekki til. Búið er að boða hörku og átök þegar þing kemur saman.

Ef blóð streymir enn um æðar Sjálstæðisflokksins getur ekki annað verið en að þar á bæ sé megn óánægja. Víst er að málþófið lék flokkinn illa. Öll forystan stappaði í þeim drullupolli. Svo harkalega að allt umhverfi flokksins varð skítugt. Drulluskítugt.
Guðrún Hafsteinsdóttir bauð sig sjálfviljug fram til formanns. Eins bauð Jens Garðar Helgason sig sjálfviljugur fram til varaformennsku. Þó þau hafi ekki setið í forystusætinu lengi hafa þau sýnt að verkefnið er of stórt og of flókið fyrir þau. Niðurstaðan er að í Valhöll er tekist á. Harkalega.
Sem von er. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var í framboði til formanns. Guðrún sigraði hana með sjónarmun. Áslaug Arna pakkaði saman og fór til náms í landi Trumps. Hún gætti þess samt að vera á þingmannalaunum þar til þing kemur saman í haust. Er sem sagt á þingmannalaunum í námi þar vestra. Og verðir eitthvað áfram.
Sumum kann að þykja þetta lýsa flokknum og flokksfélögum vel. Óvíst er hvenær næsti landsfundur verður. Átökin munu aukast jafnt og þétt. Eina sem getur komið í veg fyrir það er ef forystan breytir um kúrs. Það stendur bara ekki til. Búið er að boða hörku og átök þegar þing kemur saman.
Er það eina framtíðarsýn Sjálfstæðisflokksins? Hver verður staðan á eitt hundrað ára afmæli Sjálstæðisflokksins árið 2029?