Össur Skarphéðinsson skrifaði:
„Hinn tungulipri aristókrat Moggans, Andrés Magnússon, birti nýlega langt viðtal við Anders Borg, sem ég hef kallað Andrés amlóða, og er fyrrverandi fjármálaráðherra Svía.
Í viðtalinu stendur flaumur samansúrraðra fúkyrða um evruna upp úr sænsku efnahagsbrekkunni svo dauðskelkuðum lesanda koma helst í hug vítisprédikanir Sr. Jóns Vídalín eða plágurnar tíu sem Guð sendi yfir Egyptaland.
Borg telur upp skuldafen sem er „verri en gildra“, húsnæðisbólu, rústun á undirstöðum hagkerfisins, eyðileggingu kreppuvarna og svo það sem mest kemur á óvart: „Það er vel raunhæft að vextir lækki við upptöku evru, en það er stórhættulegt.”
Jahá. Það er semsagt stórhættulegt að lækka vexti.
Jahá. Það er semsagt stórhættulegt að lækka vexti. Hvar finna menn eiginlega svona eintak? Vonandi ekki í gegnum síðurnar þar sem þjónusta Andrésar amlóða sem “expert commentator” er falboðin gegn gjaldi.
En þetta væri í góðu lagi ef Mogginn hefði sómakennd til að birta líka hina hliðina. Svo vill til að í vikunni kom út skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar sem sérstaklega var fjallað um kosti þess fyrir örsmátt hagkerfi að taka upp evruna. Dagur B. Eggertsson, sem skrifar um Evrópumál af djúpri þekkingu (enda úthýst úr Mogganum), lýsti niðurstöðum þessa kafla ítarlega í magnaðri grein á Vísi í gær sem allir ættu að lesa.
Blessaður Mogginn skeytir hins vegar hvorki um skömm né heiður þegar kemur að upplýsingum um ágæti evrunnar. Hann stingur skýrslunni vitanlega undir stól, sópar yfir – og lætur svo hinn þéttvaxna aristókrata hlassa sér sem fastast á stólinn. Þögn Moggans um þessa umfjöllun er ærandi.
Vitaskuld. – Mogginn er á lífi af því hann fékk hundruði milljóna frá stórfyrirtækjum í þremur landsfjórðungum hið minnsta. Hann endurgeldur í fríðu með því að afflytja ESB og flest sem evrunni tengist einsog kostur er. Í umfjöllun hans um evruna örlar því ekki á sómakennd.
Á Íslandi þarf hins vegar enginn maður með viti að taka mark á Andrési amlóða. Hann er um það bil versta vitni sem Mogginn getur leitt fyrir Íslendinga. Þannig er forsaga hans og okkar.“