Dagur B. Eggertsson skrifaði:
„Mér líst mjög vel á að Andy Burnham, minn gamli kollegi og borgarstjóri Manchester, verði formaður Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Ég kynntist Andy vel í samstarfi borgarstjóra á vettvangi Bloomberg og hjá OECD þar sem við vorum í hópi borgarstjóra sem lögðu áherslu á vöxt og jöfnuð. Hann er reyndur og röskur til verka, með hjartað á réttum stað og hlýr, ræðinn og skemmtilegur og sérstaklega manneskjulegur og notalegur í viðkynningu. Þeir Steve borgarstjóri Liverpool voru óaðskiljanlegir félagar en Andy heldur reyndar með Everton.
Andy var meðal annars þekktur fyrir áherslu á almenningssamgöngur sem borgarstjóri Manchester. Hann endurreisti þær eftir langt niðurlægingarskeið. Uppbygging, uppgangur og fjárfestingar hafa einkennt Manchester undir stjórn Andy. Hann uppskar einnig viðurnefnið Konungur norðursins eftir risa-slag þar sem hann tryggði norður hluta Englands aukið fé til ýmissa hluta í kóvid en það fór algerlega úr böndunum í Bretlandi.
Ég spái Andy velgengni. Og óska honum þess innilega. Það þarf traustatök og áherslu vöxt og jöfnuð og nánari samstarf við Evrópu til að koma Bretlandi upp úr hjólförunum. Borgarsvæði skipta þar miklu málin og ég er sannfærður um að Andy er rétti maðurinn í verkið.“