ff7.is: Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 3,3 prósent síðustu 12 mánuði í Noregi samkvæmt nýjum tölum hagstofu landsins. Greinendur höfðu að jafnaði gert ráð fyrir 3,2 prósenta hækkun.
Kjarnaverðbólgan, sem norski seðlabankinn horfir helst til við ákvörðun vaxta, hækkaði úr 2,7 prósentum í 3 prósent en seðlabanki Noregs hafði gefið út þá spá að kjarnaverðbólga, þar sem gjaldskrárbreytingar og orkuverð eru undanskilin, myndi vera 3,3 prósent yfir sumarmánuðina þrjá.
Norski seðlabankinn birtir næstu vaxtaákvörðun sína eftir tvær vikur og eru greinendur í Noregi ósammála um hvort von sé á hækkun eða vextirnir haldist óbreyttir.