- Advertisement -

Blóðmerar hafa það allra hrossa best

Ásmundur Friðriksson.

„Það liggur fyrir að á annað hundrað býli í þessu landi byggja afkomu sína að verulegu leyti eða alfarið á blóðmerahaldi. Í landinu eru 70.000 hross, þar af eru 2.000 merar sem eru teknar í blóðmerahald. Samkvæmt upplýsingum sem fram komu í atvinnuveganefnd um daginn, þar sem yfirdýralæknir var fyrir svörum þegar ég óskaði eftir að hún yrði þar, hafa engin hross í landinu það betra en blóðmerar, engin hross. Minnsta álagið er á þeim. Það eru u.þ.b. 40 mínútur á ári sem þær eru undir álagi en annars eru þær úti á beit,“ sagði Ásmundur Friðriksson Sjálfstæðisflokki.

„Engum dylst erfið staða bændanna. Án breytinga á umhverfi þeirra og landbúnaðarins verður ekki eðlileg endurnýjun í sveitum landsins. Tómlæti samkeppnisyfirvalda kostar bændur og neytendur milljarða á ári. Breytingar voru gerðar um samstarf afurðastöðva og sölukerfis kúabænda fyrir nokkrum árum með gríðarlega mikilli hagræðingu. Sauðfjárbændur þurfa að feta sömu leið. Það er líka ljóst að hér í þinginu erum við oft ekki að lyfta undir með stöðu bænda,“ sagði Ásmundur.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: