- Advertisement -

Bókakynning: Siddi Gull

Í þessari nýútkomnu bók segir Þistilfirðingurinn Sigmar Ó. Maríusson – Siddi gull – fá viðburðaríkri ævi sinni. Ríflega tvítugur að aldri missti hann báða fæturna í bílslysi á Heiðarfjalli á Langanesi og hafði þá ýmislegt dunið á honum áður og átti enn eftir að gera.  En … hann hefur aldrei gefist upp, sama hvað á hefur bjátað, og ávallt horft á björtu hliðarnar, sama hversu dökkt útlitið var í rauninni. Þessu eru öllu gerð skil í frásögn sem spannar allt frá mesta draugagangi á Íslandi, Hvammsundrunum svokölluðu, til hins ofdekraða Samma.

Fjölmargir hafa í gegnum tíðina sótt í félagsskap Sigmars, einkum þegar hann rak verslun sína, Modelskartgripi, við Hverfisgötu. Létt lund hans laðaði að og þar áttu margur, sem telja mátti til utangarðsmanna í þjóðfélaginu, athvarf í dagsins önn. Má þar nefna Hemma túkall, Pétur Hoffmann og listmálarann Stefán Jónsson frá Möðrudal, sjálfan Stórval. Sigmar rekur kynni sín af þessum mönnum, en auk þess er í bókinni fjöldi gamansagna af hinum síðarnefnda. Þá segir af stórtækum skartgripaþjófi, sem fór ránshendi víða í verslunum og var gómaður á undraverðan hátt. Er þá fátt upp talið.

Það er Guðjón Ingi Eiríksson sem skráir sögu Sigmars og Bókaútgáfan Hólar gefur hana út.

Sigmar verður 85 ára á morgun, sunnudaginn 8. mars, og er það jafnframt formlegur útgáfudagur bókarinnar sem er fáanleg í öllum bókabúðum en einnig er hægt að panta hana hjá Hólum í netfanginu holar@holabok.is

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: