Breytingarnar fela í sér að verð á hádegismat í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðvum á að hækka úr 1.100 kr. í 1.900 kr.
„Fulltrúar meirihlutans í velferðarráði borgarinnar hafa samþykkt tillögu velferðarsviðs um að hækka verð á heimsendum mat og máltíðum í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum og að einfalda gjaldskrá veitinga og fæðis. Tillögunni var vísað til borgarráðs og verði hún samþykkt mun verð á máltíðum fyrir lífeyrisþega hækka úr 1.100 kr. og 1.190 kr. í 1.900 kr. 1. september. Gjaldskráin var seinast hækkuð 1. maí sl. í tíð fyrri borgarmeirihluta.“
Þetta er upphaf fréttar í Mogga dagsins.
„Lagt er til að gjald vegna aksturs heimsendra máltíða og fast fæði/matarmiðar verði lagt niður og innifalið í nýrri gjaldskrá. Eitt verð verði fyrir allar máltíðir óháð því hvar þeirra er neytt. Innifalið í heimsendum mat verði akstursgjald á sama hátt og framreiðslukostnaður í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðvum er innifalinn í verði,“ segir í tillögunni.

Í bókun fulltrúa meirihlutans segir að rekstur framleiðslueldhússins á Vitatorgi hafi um árabil verið þungur og farið verulega fram úr fjárheimildum. „Jafnframt liggur fyrir að endurbætur á eldhúsinu myndu kosta að lágmarki 500 m.kr. án þess að leysa undirliggjandi rekstrarvanda. Við þær aðstæður er ekki forsvaranlegt að ráðast í svo umfangsmikla fjárfestingu þegar unnt er að tryggja þjónustuna með öðrum hætti,“ segir þar.
Talið er að með þessari hækkun verði mögulegt að halda rekstri á Vitatorgi innan fjárheimilda á árinu 2027. Á fyrstu átta mánuðum ársins hefur framleiðslueldhúsið nánast nýtt alla 265 m.kr. fjárheimild sína.
Á fundinum var einnig samþykkt að heimila velferðarsviði að hætta við áform um endurbætur á framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi og halda áfram að fá þriðja aðila til að sjá um framleiðslu máltíða. Jafnframt að hafinn yrði undirbúningur útboðs á dreifingu máltíða í heimahús og móttökueldhús þjónustuíbúða og félagsmiðstöðva sviðsins.
Breytingarnar fela í sér að verð á hádegismat í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðvum á að hækka úr 1.100 kr. í 1.900 kr. Hádegismatur, stök máltíð, hækki úr 1.190 kr. í 1.900 kr. og heimsendur matur fari úr 1.100 kr. í 1.900 kr. „Akstursgjald upp á 325 kr. verði fellt niður en verði innifalið í heimsendum máltíðum, á sama hátt og framreiðslukostnaður í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðum verði innifalinn í verði. Greiðsluþátttaka velferðarsviðs verði þá í kringum 38%. Hækkun á hádegismat nemur 800 kr. Þar sem að akstursgjald er innifalið í nýju verði mun verð heimsendra máltíða hækka um 475 kr. þegar tekið hefur verið tillit til þess að akstursgjald mun falla niður,“ segir í greinargerð.“