Það er stór fullyrðing, ekki síst þegar hún kemur úr átt þar sem kosningasigrar hafa ekki beinlínis raðast upp.
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Sigfús Aðalsteinsson hefur hrundið af stað undirskriftarsöfnun gegn Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og krefst þess að hún og aðrir ráðherrar Viðreisnar segi af sér embætti. Tilefnið er nýliðin þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem neisinnar höfðu nauman sigur. Í texta með söfnuninni segir að tapið verði að hafa pólitískar afleiðingar.
Það er stór fullyrðing, ekki síst þegar hún kemur úr átt þar sem kosningasigrar hafa ekki beinlínis raðast upp. Í borgarstjórnarkosningunum í vor leiddi hann framboðið Okkar borg, sem hlaut svo fá atkvæði að niðurstaðan minnti meira á vel sóttan húsfund í Sólheimablokk en eiginlegt borgarstjórnarframboð.
Framganga Sigfúsar
er því fyrst og fremst
vanstilling…
Framganga Sigfúsar er því fyrst og fremst vanstilling af hans hálfu. Erfitt er að sjá hana sem annað en atlögu að lýðræðinu og afstöðu þeirra 105 þúsund manna sem kusu já.
Ef Sigfús vill vera samkvæmur sjálfum sér ætti hann að draga sig í hlé og sýna í verki að kosningaúrslit hafi pólitískar afleiðingar. Það er nefnilega auðvelt að predika ábyrgð annarra úr ræðustól, en erfiðara er að gera það af trúverðugleika þegar maður hefur sjálfur fengið afgerandi höfnun kjósenda.