- Advertisement -

Davíð þykist vera hneykslaður

Halldór og Davíð.

Davíð fjallar um lekann á skýrslu ríkisendurskoðanda í leiðara dagsins. Hann lætur sem hann hafi fengið hland fyrir hjartað að skýrslunni hafi verið lekið. Segir meira að segja að virðingu Alþingis sé stefnt í voða.

„Því sá sem ekki virðir trúnað, hon­um verður ekki trúað fyr­ir neinu. Þar mun Alþingi allt gjalda fyr­ir svik­semi eins þing­manns, veik­asta hlekks­ins í þing­inu, og þannig er grafið und­an trausti í þing­inu og til Alþing­is,“ segir í lok leiðaraskrifa Davíðs þennan daginn.

Ætli Alþingi hafi ekki áður fengið verri og kaldari gusur en þessa. Við munum hvernig Davíð og Halldór vanvirtu Alþingi fullkomlega þegar þeir tveir ákváðu að Ísland yrði í hópi þeirra þjóða sem stóðu að innrásinni í Írak. Sennilega mesta asnaprik íslenskra stjórnvalda.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Aftur í leiðarann: „Alþingi set­ur niður við þetta. Þingmaður­inn, sem lak, sýndi Alþingi óvirðingu og það er Alþingi en ekki hann, sem hef­ur van­v­irðu af þessu heimskup­ari.“

Davíð kanntu annan?

-sme


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: