Þessi skrif Guðna eru hins vegar dæmigerð fyrir þá áróðursherferð sem er í gangi, hjá flokkum sem þola ekki að missa völd.
Marinó G. Njálsson.
Enn er reynt að kenna núverandi ríkisstjórn um mál sem ráðherrar fyrri ríkisstjórna hafa flotið sofandi að feigðarósi hvað málið varðar. Guðni Ágústsson vaknaði loksins til vitundar með, að í áraraðir hafa nokkur erlend flugfélög neitað að afhenda farþegalista. Hann kennir núverandi dómsmálaráðherra um, en frá því að þetta mál kom fyrst upp árið 2018 hafa eftirfarandi einstaklingar gengt stöðu dómsmálaráðherra og/eða innanríkisráðherra:
- – Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra frá 19. júní 2023 til 21. desember 2024.
- – Jón Gunnarsson, innanríkisráðherra frá 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022, dómsmálaráðherra frá 31. janúar 2022 til 19. júní 2023
- – Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, frá 6. september 2019 til 28. nóvember 2021
- – Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, frá 14. mars 2019 til 6. september 2019
- – Sigríður Á. Andersen, frá 11. janúar 2017 til 14. mars 2019
En öll voru þau í ríkisstjórn með Framsókn síðustu tvö kjörtímabil. Alveg ljóst að Þorbjörgu ber alla ábyrgð eða þannig.

Sé leitað á vef Alþingis, þá má finna umræðu um þessa farþegalista í þessu samhengi a.m.k. svo langt aftur sem til 2018, þegar Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, svaraði fyrirspurn Ólafs Ísleifssonar um fjölda hælisleitenda. Í svari dómsmálaráðherra segir m.a.:
„Í mörgum tilvikum fer fram greining á farþegalistum en hins vegar veita ekki öll flugfélög aðgang að sínum farþegaupplýsingum.“
Dómsmálaráðherra lagði vissulega fram frumvarp, sem dagaði uppi, en það var ekki um skyldu flugfélaga til að afhenda farþegalista, heldur um heimildir lögreglu til að nýta listana.
Það er ekki fyrr en árið 2022, þ.e. 4 árum eftir að Ólafur lagði fram sína fyrirspurn og dómsmálaráðherra viðurkenndi að ekki öll flugfélög skiluðu slíkum listum, að Jón Gunnarsson, þáverandi dómsmálaráðherra, lagði fram frumvarp þess efnis að stjórnendur allra loftfara ættu að leggja fram farþegalista. Frumvarpið dagaði uppi.
Hvers vegna þetta mál er núverandi dómsmálaráðherra að kenna, er mér óskiljanlegt. Málið hefur verið í umræðunni, af og til, a.m.k. sl. 7 ár, sbr. uppflettingar mínar á vef Alþingis. Loks þegar Framsókn er ekki lengur í ríkisstjórn, þá er allt fyrsta dómsmálaráðherra, eftir að Framsókn missti sætið við kjötkatlanna, að kenna að flugfélögin senda ekki inn farþegalista.
Þessi skrif Guðna eru hins vegar dæmigerð fyrir þá áróðursherferð sem er í gangi, hjá flokkum sem þola ekki að missa völd. Í þessu tilfelli fer hann með rangt mál um sök Þorbjargar, enda hentar það ekki málstað hans að segja rétt frá. Það var ákvörðun ríkisstjórnar, sem Framsókn sat í, að málið væri ekki nægilega mikilvægt til að það fengi afgreiðslu árið 2022, líklega vegna þess að í frumvarpinu var ýmislegt annað sem var umdeilt.
Núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins tók við málaflokknum og taldi þetta ekki nægilega mikilvægt mál, þrátt fyrir að vera 1. þingmaður Suðurlandskjördæmis, en Keflavíkurflugvöllur og embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum er innan þess kjördæmis.
Aftur var það líklega vegna þess að taka átti heilstætt á umdeildu máli, sem kom farþegalistunum í raun ekkert við, í staðinn fyrir að gera einfalda breytingu á einu atriði.
Við sem erum virk í þjóðfélagsumræðunni, hvort heldur á Facebook eða annars staðar, og viljum vernda lýðræðið, verðum að vera dugleg við að leiðrétta svona tilraunir til að afvegaleiða umræðuna og hagræða sannleikanum. Flestum finnst það ekki skipta máli eða að þó þeir kvabbi eitthvað á netinu, þá breyti það engu. Það er ekki rétt. Ef við leyfum bullinu að viðgangast, þá endar það á því, að fólk heldur að bullið sé staðreyndir. Vilji fólk ekki líta sér nær, þá er nóg að horfa til Bandaríkjanna, þar sem stór hluti landsmanna virkilega trúir bullinu í núverandi forseta, þó eitthvað séu tvær grímur farnar að renna á suma sem áður voru blindir í „trú“ sinni.“
Marinó birti greinina fyrst á eigin Facebooksíðu. Greinin er birt hér með góðfúslegu leyfi höfundar.