Dagbjört Hákonardóttir alþingismaður skrifaði:

„Ísland hefur nú, ásamt hinum Norðurlöndunum og fleiri nánum samstarfsríkjum, tekið þátt í sameiginlegu frumkvæði til að verja tveggja ríkja lausnina og auka þrýsting vegna ólögmætra landtökubyggða á Vesturbakkanum. Þar eru viðskiptaþvinganir meðal þeirra aðgerða sem ríkin hyggjast eða skoða að beita.
Ég er stolt af því að Ísland standi þar í fremstu röð, ekki síst með hinum Norðurlöndunum. Tveggja ríkja lausnin þarf pólitískt bakland, þrýsting og ríki sem eru reiðubúin að leggja sitt af mörkum. Markmiðið sem Oslóarferlið markaði fyrir meira en þrjátíu árum — tvö ríki sem búa hlið við hlið í friði og öryggi — verður að verða að veruleika.
Þróunin á Vesturbakkanum, útþensla landtökubyggða og gegndarlaust ofbeldi landtökufólks grafa sífellt undan möguleikanum á sjálfstæðu og lífvænlegu Palestínuríki. Á sama tíma heldur almenningur á Gaza áfram að líða ólýsanlegar þjáningar, á meðan ríkisstjórn Netanyahus hefur ítrekað sýnt skelfilegt skeytingarleysi gagnvart mannslífum á Gaza.
Og þetta skiptir máli langt út fyrir Ísland. Öll Norðurlöndin, átta ESB-ríki, Kanada og Bretland standa að þessu sameiginlega frumkvæði. Bretland, Frakkland og Kanada hafa jafnframt boðað aðgerðir til að banna viðskipti með vörur frá ólöglegum landtökubyggðum. Það má ekki vanmeta hvað felst í því — ekki síst þegar Bretland stígur slíkt skref og er jafn afdráttarlaust í máli. Fyrir fáeinum misserum hefði sambærileg samstaða þótt óhugsandi.
Alþjóðlegur þrýstingur til að verja tveggja ríkja lausnina er að taka á sig nýja og áþreifanlegri mynd. Ég er gífurlega stolt af því að Ísland standi þar framarlega.“