- Advertisement -

„Ég stend með minni ákvörðun“

Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar:

Nú reynir Hörður Ægisson í leiðara Fréttablaðsins að siga Fjármálaeftirlitinu á mig fyrir að dirfast að hafa skoðun á því í hvað minn eigin lífeyrir og félaga minna í stétt láglauna og verkafólks er notaður. Hann gagnrýnir líka að ég hafi ekki veið tilbúin til að skrifa undir sameiginlega sáttayfirlýsingu Alþýðusambandsins og Icelandair, þar sem ASÍ hvítþvær Icelandair og SA með því að kalla gróf brot Icelandair á vinnulöggjöf þessa lands „brot á samskiptareglum“, í kjölfar þess að forstjóri Icelandair leitaði til ASÍ til að „fá gott veður“ vegna hlutafjárútboðsins.

Hörður virðist, eins og því miður allt of margir, ekki alveg nógu klókur. Hann virðist ekki skilja að miðstjórn ASÍ tók, með því að skrifa undir yfirlýsinguna, einbeittan þátt í að reyna að hafa áhrif á ákvörðun stjórna lífeyrissjóðanna. Til þess var leikurinn gerður og full vitneskja um það innan miðstjórnar ASÍ. Þannig að réttast væri, ef að Hörður gæti verið samkvæmur sjálfum sér, að hann legði jafnframt til að Fjármálaeftirlitinu yrði sigað á öll þau sem tóku þátt í að samþykkja að skrifað yrði undir hina sameiginlegu yfirlýsingu að morgni þess dags er hlutafjárútboð Icelandair hófst.

Þegar beðið var um „gott veður“ af forstjóranum var það nóg til að hætt væri við málsókn.

Ég er stolt af ákvörðun minni um að skrifa ekki undir yfirlýsinguna. Sem formaður annars stærsta verkalýðsfélags Íslands og sem annar varaforseti Alþýðusambands Íslands tel ég það skildu mína að standa vörð um þau lög er gilda í landinu um stéttarfélög og vinnudeilur. Miðstjórn ASÍ tók í sumar upplýsta ákvörðun, eftir að hafa fengið sérstakt minnisblað útbúið að lögmanni ASÍ, um að höfða ætti mál fyrir Félagsdómi gegn Icelandair vegna brota fyrirtækisins á lögum. Engar málefnalegar ástæður voru fyrir því að hætta ætti við slíka málsókn og ekkert minnisblað var útbúið af lögfræðingum ASÍ um það. Þegar beðið var um „gott veður“ af forstjóranum var það nóg til að hætt væri við málsókn.

Ég stend með minni ákvörðun. Og ég tel að ég hafi fullan rétt, og það sé í raun mitt hlutverk, að standa vörð um hagsmuni og réttindi minni félagsmanna. Það mun ég gera svo lengi sem ég er formaður Eflingar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: