- Advertisement -

Ég tel þau hafi nú endanlega gert út af við hreifinguna okkar

Ingi Hans Jónsson skrifaði:

Þessi dagur hófst með látum. Mér er gjörsamlega ofboðið. Það gekk alveg fram af mér að sjá Katrínu Jakobsdóttur tilla sér á bekk með fólki sem telur það of mikið að þjóðin fái að kanna hvort betra býðst. Ganga fram fyrir skjöldu með yfirlýsingar á fundi auðmanna og berja þeirra bumbur. Auðmanna sem ausa nú gríðarlegum fjármunum í baráttu gegn lýðræðinu.

Hún er svo sum ekki fyrst minna félaga til þeirrar vegferðar. Þar ganga þau þau hönd í hönd hún, Steingrímur Sigfússon og Svandís Svavarsdóttir. Ég geng ekki þeirra slóð og mun ekki framar standa við hlið þeirra í verðbólgubálinu. Ég tel þau hafi nú endanlega gert út af við hreifinguna okkar og ég hef nú yfirgefið þá brunarúst. Það trúlega skiptir litlu hvort ég er þar eða ekki en maður verður að eiga sín prinsip. Mér er það ljósara nú en fyrr að þetta snerist aldrei um OKKUR bara um þau. Hjá þeim mun ég ekki sitja!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: