Jóhann Hauksson blaðamaður skrifar:
Myndin er af vanheilögu bandalagi Sjálfstæðisflokksins, fjármagnseigenda og verkalýðshreyfingarinnar sem vill hafa sjálfsagðan rétt af þjóðinni til þess að gera samning um aðild að ESB sem þjóðin gæti hafnað í síðari þjóðaratkvæðagreiðslu ef henni þætti samningurinn vondur.
Myndin sýnir andartakið þegar Sólveig Anna (Eflingu) ræðir húsnæðisvanda alþýðu Íslands sitjandi við hlið húsnæðisvandans eins og Hallgrímur Helgason orðar það. Ég tel útilokað að framganga hennar í þessu máli gagnist láglaunafólki innan vébanda Eflingar.
Sjálfur bý ég í Danmörku ekki ýkja langt frá þýsku landamærunum. Ég keypti mér stórt hús fyrir 11,5 milljónir íslenskar (núvirði) og losaði mig við ævilangar húsnæðisskuldir á einu bretti. Eftir hrun varð ég eignalaus og mátti þakka fyrir að halda húsnæði mínu í Reykjavík.
Danir hafa verið í Evrópusambandinu í 53 ár. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra eru ánægðir með aðildina og leiða reyndar sjaldnast hugann að henni. Þeir fengu sínar undanþágur m.a. um að hver sá sem kaupir hús í Danmörku þarf að flytja lögheimili sitt þangað. Danir búa nú við mestan hagvöxt innan ESB. Krónan þeirra er rígbundin evrunni (svona mini evra). Atvinnuleysi er 3,1 prósent. Flest er hér fyrirsjáanlegt nema aðgerðir Trumps, olíuverð o.fl. sem hefur áhrif á tiltölulega stöðugt verðlag.
Danir búa við þróað skrifræði og regluverk til að skattleggja og útdeila gæðum samfélagsins á réttlátan hátt. Skrifræði og regluverk eru fylgifiskar lýðræðis, koma í veg fyrir geðþótta, og er einskonar verkfæri til að tryggja jafnræði og jafnan rétt borgaranna. Skrifræði er gildishlaðið orð en ekki má gleyma því að það er verkfæri lýðræðis til að framkvæma ákvarðanir sem teknar eru lýðræðislega.
Danir eru þjóðræknir, halda sínum vörum á lofti, og engin þjóð flaggar sínum fána jafn oft og þeir.
Þann dag sem Dönum þykir hagsmunum sínum betur borgið utan ESB efna þeir til þjóðaratkvæðageiðslu á grundvelli fullveldis síns og ganga út líkt og Bretar gerðu (sem nú sjá eftir öllu saman). Þeir eru áreiðanlega ekki að fara að gera það, enda hefur Evrópa verið að þétta raðir sínar vegna öryggishagsmuna sem Ísland þarf líka að skoða ofan í kjölinn.
Bandalagið vanhelga á myndinni vill hafa réttinn af íslenskum kjósendum til að eiga val í framtíðinni um að gera hagstæðan samning um aðild að ESB. Samning sem þjóðin gæti hafnað í síðari þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hvers vegna? Hvað er að óttast?
JÁ – ið er áhættulaust.
Ég segi JÁ – til að sjá.