Og það þarf að endurskoða álagningu fasteignagjalda – þar verður ríkið líka að koma að. Gengur ekki að síhækkandi fasteignagjöld séu svo mikilvægur tekjustofn.
Egill Helgason.
Umræðan/Faceboook: Egill Helgason skrifaði:
Ég hef ekki farið dult með þá skoðun að þurfi að skipta út í borgarstjórninni í Reykjavík og fá inn nýtt fólk. Mér er eiginlega slétt sama úr hvaða stjórnmálaflokkum það er. Flokkarnir eru eiginlega til óþurftar í borgarmálum. Mér hefur reyndar virst að flokkar í borgarstjórn séu sammála um flesta hluti – pólitíkin þar er meira í ætt við valdatog. Þetta tengist líka því að langstærstur hluti af fé borgarstjórnarinnar fer í fyrirfram ákveðin og að miklu leyti lögbundin verkefni. Það er fjarska lítill sjóður sem borgarfulltrúar hafa til að ráðstafa að vild. En það er komin mikil valdþreyta í Ráðhúsið, sama fólk situr þar ár út og ár inn í sama þrasinu.
Borgin virðist býsna þjökuð af vaxandi skrifræði – það er held ég nauðsyn að einfalda kerfið. Að öllu óbreyttu óttast ég að borgarstjórnarkosningarnar í vor verði mjög harðar en að umræðan fyrir kosningarnar verði ekki að sama skapi frjó. Að því er lýtur að mínum áhugamálum finnst mér nauðsynlegt að fari fram einhvers konar uppgjör gagnvart skelfilegri öfugþróun í skipulagsmálum og byggingalist. Það er reyndar langt í frá bara bundið við Reykjavík – dæmin sjáum við víðar um höfuðborgarsvæðið.
Mætti kannski byrja þá því að borgar- og bæjarfulltrúar læsu hina stuttu og hnitmiðuðu bók Andri Snær Magnason sem nefnist Jötunsteinn og kom út fyrir jólin. Þess utan eiga borg, bæir og ríki hæglega að geta komið sér saman um aðgerðir í húsnæðismálum – sérstaklega fyrir ungt fólk og leigjendur. Og það þarf að endurskoða álagningu fasteignagjalda – þar verður ríkið líka að koma að. Gengur ekki að síhækkandi fasteignagjöld séu svo mikilvægur tekjustofn.