- Advertisement -

EINN MEÐ ÖLLU

Facebook: Guðmundur Andri Thorsson skrifaði eftirfarandi grein:

Donald Trump hefur á ný tekist að ganga fram af öllum sómakærum löndum sínum þegar hann nánast fagnar voðaverki í Hollywood, vígi aldraðra hjóna, lætur málið snúast um sig, andstöðu hjónanna við sig og … það er ekki einu sinni hægt að endursegja þann hroða sem út úr manninum vellur. Hann hefur áður sýnt að hann er gersneyddur samhygð, ófær um að finna til með öðrum, hinn fullkomlega eigingjarni maður. Út á þennan eiginleika og þau viðhorf sem honum fylgja var hann kosinn. Trump var ekki kosinn þrátt fyrir galla sína heldur vegna þeirra. Eigingirni og grimmd og ósannsögli voru þeir eiginleikar sem helmingur bandarískra kjósenda taldi að forystumaður þyrfti að hafa til að bera; kannski töldu þeir alla stjórnmálamenn hafa þessa eiginleika, en Donald væri bara hreinn og beinn með sínar lygar og haturstal.

Trump er einn með öllu. Allar dauðasyndirnar sjö eru samankomnar í einum manni – og hafa hátt. Og eins og við munum hafa þær gríðarlegt aðdráttarafl og því getur fylgt ómótstæðileg frelsiskennd að lifa sig inn í lygina.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: