- Advertisement -

Ekki bundin af niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar

Úrslitin voru svo tæp að ekki verður útilokað að dreifing ósannra upplýsinga hafi haft úrslitaáhrif en ekki málefnaleg rök.

Jóhann Þorvarðarson.

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

„Lögmæti þjóðaratkvæðagreiðslunnar um helgina byggir ekki aðeins á því að atkvæði séu talin rétt heldur einnig á því að kjósendur hafi haft raunverulegt tækifæri til að taka upplýsta ákvörðun. Þegar upp koma ásakanir um að stór hluti umræðunnar hafi byggst á röngum upplýsingum eða  vísvitandi blekkingum er réttlætanlegt að endurskoða niðurstöðu slíkrar atkvæðagreiðslu. Og alveg sérstaklega þegar mjótt er á munum.

Ef fólk greiðir atkvæði á grundvelli upplýsinga sem eru rangar er ljóst að niðurstaðan endurspeglar ekki raunverulegan vilja kjósenda heldur vilja sem mótaðist af lygaáróðri, hræðsluáróðri, dylgjum eða misskilningi. Réttar upplýsingar eru jafn mikilvæg forsenda lýðræðis og sjálf atkvæðagreiðslan. Því er það ekki sjálfgefið að þjóðaratkvæðagreiðsla núna eigi að standa óhögguð.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég benti á það í grein á fimmtudagskvöld að fyrirliði neisinna í Áfram Ísland hafi byrjað umræðuþátt á RÚV með rangfærslu um atvinnuleysi innan ESB. Framsetningin var að mínu mati til þess fallin að villa um fyrir kjósendum.

Hann hóf líka kosningabaráttuna í sumar með sama hætti í þættinum Í Vikulokin með yfirlýsingu um að nauðsynlegt væri að hafa íslensku krónuna til að geta gjaldfellt hana í þeim tilgangi að koma í veg fyrir atvinnuleysi á erfiðum tímum. Hann, sem hagfræðingur, veit að nútíma hagstjórn hefur yfirgefið gjaldfellingu gjaldmiðla sem lausn á efnahagslegum vanda. Samt hélt hann þessu fram.

Þetta eru fullyrðingar sem að mínu mati voru til þess fallnar að villa um fyrir kjósendum.

Úrslitin voru
svo tæp…

Slíkar fullyrðingar voru áberandi í málflutningi margra neisinna. Hver man ekki eftir þegar sagt var að aðild myndi kosta landið 500 milljarða króna. Tala sem tók síðan sífelldum breytingum hjá neisinnum og var komin niður í 50 milljarða króna í síðustu viku.

Og hver man ekki eftir yfirlýsingum um að orkuverð myndi hækka eða að Íslendingar yrðu að sæta herkvaðningu þó Evrópusambandið hafi enga her eða eigi enga byssu. Svona héldu þessar fullyrðingar áfram að birtast. Dreifing ósannra fullyrðinga var hreint yfirþyrmandi.

Úrslitin voru svo tæp að ekki verður útilokað að dreifing ósannra upplýsinga hafi haft úrslitaáhrif en ekki málefnaleg rök. Í slíkum tilvikum er rétt að rannsaka málið gaumgæfilega og meta hvort forsendur séu fyrir frekari aðgerðum, þar á meðal nýrri atkvæðagreiðslu. Að rannsaka ekki slíkar ásakanir getur grafið undan trausti á lýðræðislegri ákvarðanatöku.

Og jafnvel
að hefja
aðildarviðræður…

Það var frumhlaup hjá ríkisstjórninni að lýsa því yfir að niðurstaðan yrði virt án þess að kannað hefði verið hvort dreifing rangra upplýsinga hefði haft áhrif á úrslitin. Þegar aðeins munaði fáeinum prósentustigum ber að rannsaka slíkar ásakanir af fullri alvöru. Komi í ljós að markvissar rangfærslur hafi ráðið úrslitum þarf að meta hvaða viðbrögð séu lýðræðinu fyrir bestu. Og jafnvel að hefja aðildarviðræður því þjóðin fær síðar tækiflri til að greiða atkvæði um samninginn.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: