
Úlfar Hauksson skrifaði:
„Sjálfstæðismenn eru svo örvæntingarfullir í stjórnarandstöðu að þeir leggjast svo lágt að gera öll samskipti við okkar helstu vina- og viðskiptaþjóðir, það sem við köllum vestræna samvinnu, tortryggilega. Þeir hafa krafsað og leitað djúpt í verkfærakistunni og nú skal allt gert til að hræra í upplýsingaóreiðupottinum. Ruglið sem sprottið hefur af tungu talsmanna flokksins, málþófið um plasttappa, veiðigjöld og nú Evrópumál útaf heimsókn embættismanns, er með hreinum ólíkindum. Meira að segja mörgum sjálfstæðismanninum hlýtur að blöskra…. sem kemur reyndar fram í skoðanakönnunum.
Sjallar – og aðrir stjórnarandstæðingar – geta hins vegar alveg sofið rótt. Það er engin „bakdyraleið“ inn í ESB og engin þjóð er „kúguð“ inn í ESB. Þeir fá tækifæri til að kjósa um áframhald aðildarviðræðna og svo um samning þegar og ef hann liggur fyrir…“