
Björn Leví Gunnarsson skrifar:
„Jú, það er trygging. Það þarf stjórnarskrárbreytingu til þess að hægt sé að samþykkja aðildarsamning við ESB. Þannig að það er aldrei hægt að samþykkja aðild að ESB (eða láta hana taka gildi) fyrr en stjórnarskránni er breytt – sem þarf almennar þingkosningar.
En hvaða ríkisstjórn sem ætlar að gera slikar breytingar á stjórnarskrá ætti aldrei að gera það nema vera með sérstakar kosningar um breytingu og aðild samhliða almennum þingkosningum. En jafnvel þó það væri ekki gert, þá þarf að minnsta kosti þingkosningar. Sem er líka (almenn) þjóðaratkvæðagreiðsla.
Þetta ætti fyrrum forseti að vita. Hann ætti einnig að vita að forseti getur hafnað lögum sem þyrfti að innleiða vegna aðildar ef ríkisstjórn hefur ekki staðið við loforð um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna aðildar.
Þannig að enn og aftur er ÓRG í ruglinu.“