- Advertisement -

Enn tapa Vinstri græn fylgi

Gunnar Smári skrifar:

Það eru ekki umtalsverður sveiflur í fylgi flokkanna milli mánaða og því kannski auðveldast að bera saman fylgið nú samkvæmt MMR við síðustu kosningar:

Þetta eru þeir flokkar sem hafa bætt við sig fylgi:
Sósíalistaflokkurinn: +4,6 prósentustig
Píratar: +4,3 prósentustig
Samfylkingin: +3,1 prósentustig
Viðreisn: +3,0 prósentustig
Miðflokkurinn: +0,7 prósentustig

Og þessir flokkar hafa misst fylgi:
Framsókn: –0,5 prósentustig
Flokkur fólksins: –3,1 prósentustig
Sjálfstæðisflokkur: –3,3 prósentustig
VG: –8,6 prósentustig

Allir stjórnarflokkarnir tapa, VG lang mestu (hefur misst frá sér 1/2 af fylginu og gæti horft upp á hættu á að þurrkast út af þingi með sama áframhaldi). Nýju flokkarnir hægra megin, xM og xF, standa í stað eða gefa eftir. Hin svokallaða frjálslynda miðja, SPC, vinnur á en þó Sósíalistaflokkurinn mest.

Breytingar á þingliðinu yrðu þessar:Sjálfstæðisflokkur: 15 þingmenn (–1)
VG: 6 þingmenn (–5)
Framsókn: 7 þingmenn (–1)
Samtals: 28 þingmenn (–7)

Stjórnarandstaðan:
Samfylkingin: 11 þingmenn (+4)
Píratar: 9 þingmenn (+3)
Miðflokkurinn: 8 þingmenn (–1)
Viðreisn: 7 þingmenn (+3)
Flokkur fólksins: 0 þingmenn (–2)

Sósíalistar eru við 5% þröskuldinn og myndi taka þingmann af Viðreisn, Samfylkingu og VG samkvæmt þessari könnun. En auðvitað er það svo að það má ekki hósta á niðurstöðurnar til að útkoman yrði önnur.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: