- Advertisement -

„Er Þór­dís Lóa í full­kom­inni flónsku gagn­vart fjár­hag Reykja­vík­ur­borg­ar?“

Stjórnmál / „Þegar allt kem­ur til alls er einni spurn­ingu ósvarað. Er Þór­dís Lóa í full­kom­inni flónsku gagn­vart fjár­hag Reykja­vík­ur­borg­ar? Eða fer hún vís­vit­andi með ósann­indi? Ekki veit ég, hvort mér þykir verra.“

Það er Hildur Björnsdóttir, varaoddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sem sendir formanni borgarráðs, Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, þessa sneið í Moggagrein í dag.

Tilefnið er neyðarkalli borg­ar­inn­ar. Starfshópur sem; „sem skipaður var af borg­ar­stjóra, hvar sátu marg­ir helstu stjórn­end­ur Reykja­vík­ur­borg­ar,“ hafði skilað af sér: Þar sagði meðal ann­ars að viðbótar­fjármögn­un­arþörf borg­ar­sjóðs um­fram for­send­ur fjár­hags­áætl­un­ar fyr­ir 2020-21 myndi nema 39 millj­örðum króna. Þá væru ótald­ir 36,5 millj­arðar sem myndu falla til næstu árin. Jafn­framt sagði í niður­stöðunum: „Vand­inn snýst hins veg­ar ekki aðeins um skammtíma fjár­mögn­un­ar­vanda held­ur stefn­ir í al­ger­lega ósjálf­bær­an rekst­ur til margra ára. Þessa ósjálf­bærni er ekki hægt að leysa með hækk­un leyfi­legr­ar skatt­lagn­ing­ar eða þjón­ustu­gjalda eða með stór­felld­um niður­skurði í út­gjöld­um borg­ar­inn­ar. Hefðbundn­ar aðferðir eru ekki í boði.“

Hildur heldur áfram: „Skóg­ar­bónd­inn, Þór­dís Lóa, virt­ist alls ómeðvituð um neyðarkall borg­ar­inn­ar til rík­is­sjóðs – jafn­vel þótt hún hefði á vor­dög­um sett er­indið sjálf á dag­skrá borg­ar­ráðs. Sá kann ekki að segja af súru sem aldrei sýp­ur nema sætt. Meiri­hluta­flokk­arn­ir hafa meiri áhuga á eig­in inn­an­tóma lof­orðahjómi, en úr­lausn flók­inna viðfangs­efna. Þór­dís Lóa rækt­ar garðinn sinn, en sýn­ir fjár­mál­um borg­ar­inn­ar full­komið hirðuleysi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…út­gjöld sem nema 100 millj­örðum hið minnsta…

Neyðarkall borg­ar­inn­ar sýndi glöggt al­var­lega stöðu borg­ar­sjóðs – mun al­var­legri en stöðu annarra sveit­ar­fé­laga. Nú bít­ur meiri­hlut­inn í það sjálf­skapaða súra epli, að hafa haldið frjáls­lega um rekst­ur borg­ar­sjóðs und­anliðin kjör­tíma­bil. Hirðuleysið er al­gert – borg­in er varn­ar­laus nú þegar skór­inn krepp­ir – og ábyrgðin er meiri­hlut­ans.

Sam­hliða neyðarkall­inu kynn­ir meiri­hlut­inn hið svo­kallaða „Græna plan“ sem kall­ar á út­gjöld sem nema 100 millj­örðum hið minnsta, næstu 5-10 árin. Hvernig áformin sam­ræm­ast ósjálf­bær­um rekstri Reykja­vík­ur­borg­ar er full­kom­lega á huldu. Minn­ir helst á ný­lega ábata­grein­ingu borg­ar­inn­ar á ferðaþjón­ustu, hvar borg­in kallaði á rík­isaðstoð og full­yrti ferðaþjón­ust­una kosta sveit­ar­fé­lagið 8,3 millj­arða ár­lega. Hag­ur borg­ar­inn­ar hef­ur þá vænt­an­lega vænkast veru­lega, nú þegar ferðaþjón­ust­an berst í bökk­um? Hér stend­ur ekki steinn yfir steini.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: