- Advertisement -

Eru allir jafnir fyrir lögum í sjávarútvegi?

Magnús Guðbergsson skrifar:

„Það vekur furðu ef stór útgerðarfyrirtæki geta landað verulegu magni allt að 600 kg. á dag af lúðu, tegund sem nýtur sérstakrar verndar vegna viðkvæmrar stöðu sinnar, án þess að sjáanleg viðbrögð stjórnvalda fylgi í kjölfarið. Á sama tíma vita strandveiðisjómenn að ef þeir koma með lúðu að landi geta þeir átt yfir höfði sér upptöku afla, háar sektir og jafnvel missi veiðileyfis.

Hver er munurinn á því hvort lúðan veiðist í togveiðarfæri eða á öngul? Ef fiskurinn er lífvænlegur ætti meginreglan að vera sú sama. Að sleppa honum af varfærni. Reglurnar hljóta að gilda jafnt fyrir alla.

Lúða er í útrýmingarhættu og algert bann er á veiðum hennar í hverskyns veiðarfæri.

Væri eftllvill nauðsynlegt að banna togveiðarfæri þar sem hún kemur í veiðarfæri?

Ef hins vegar mismunandi viðmið eru notuð eftir stærð útgerðar vaknar eðlilega spurning um jafnræði fyrir lögum. Réttarríkið byggist á því að sömu reglur gildi fyrir alla, óháð stærð, fjárhagslegum styrk eða pólitískum áhrifum.

Of margir smábátaeigendur upplifa að þeir séu undir stöðugu eftirliti og sæti harðari viðurlögum, á meðan stærri aðilar virðist njóta meira svigrúms. Hvort sú upplifun endurspeglar raunveruleikann er mikilvægt að stjórnvöld svari með gagnsæi og skýrum upplýsingum.

Traust á fiskveiðistjórnun byggist á því að lög séu ekki aðeins skýr heldur einnig framkvæmd af sama mælikvarða gagnvart öllum.

Svo er annað sem stjórnvöld þurfa að svara.

Hvers vegna eru togskipum hleypt á mikilvæg uppeldissvæði ungviðis þrátt fyrir stöðugan samdrátt í aflaheimildum síðustu áratugina?

Er það einn þáttur um að ekki hafi náðst að byggja aftur upp fiskistofna þjóðarinnar?

Er vafin hafin yfir gagnrýni eða ættu stjórnvöld að láta vafann hafa forgang og færa slíkar veiðar út fyrir viðkvæmt lífríki sjávar?

Er kominn tími á að strandveiðar fái landgrunnið fyrir umhverfisvænni veiðar sem hvorki skaða fiskistofna okkar né lífríki sjávar?


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: