- Advertisement -

Eru stjórnendurnir helsta fyrirstaðan?

Sama stjórn og stjórnendur sem ráku félagið með bullandi tapi á mesta góðæristíma flugsögunnar.

Ragnar Þór Ingólfsson skrifar:

Gæti verið að stjórnendur félagsins séu helsta fyrirstaðan að Icelandair verði bjargað?

Ég hef átt mörg samtöl við stjórnarmenn í lífeyrissjóðnum okkar vegna málsins og get staðfest að aldrei hefur komið krafa um það frá stjórninni að endursemja þurfi við starfsfólk félagsis svo það verði „samkeppnishæft“ við önnur flugfélög. Ég get þó nánast fullyrt að lífeyrissjóðirnir opna ekki buddur sínar fyrir félag sem ætlar starfsfólki að afsala sér grundvallar réttindum.

Það má vera að það sé niðurlægjandi fyrir stjórnendur félagsins að halda hluthafafund án þess að langtíma kjarasamningar liggja fyrir en segir það þá ekki allt sem segja þarf um stjórnendur?

Sama stjórn og stjórnendur sem ráku félagið með bullandi tapi á mesta góðæristíma flugsögunnar.

Sama stjórn og stjórnendur sem stigið hafa fleiri feilspor en almennt þekkist í fyrirtækjarekstri og má þar nefna breytingar á leiðakerfi, milljarða framúrkeyrslu við innleiðingu tölvukerfa og innri breytinga.

Sama stjórn og stjórnendur sem bera ábyrgð á milljarða skandal í kringum Lindarvatn. Sjá. Brask og brall á Landssímareit.

Sama stjórn og stjórnendur og kusu að standa með samningum um flugvélar sem fáir þora að fljúga með.

Sama stjórn og stjórnendur og vilja nú með öllum ráðum velta fortíðarvanda félagsins yfir á lífeyrissjóði og skattgreiðendur í nafni þess að vandamálið sé starfsfólkið þegar málið snýst um það sem fáir virðast þora að segja. Að halda núverandi stjórnendaklíku við völd í einu af stærstu og mikilvægustu fyrirtækjum landsins.

Sama stjórn og stjórnendur og telja sig geta sannfært fjárfesta með trúverðugum áætlunum, en munu svo vafalaust kenna starfsfólkinu um ef illa fer og ekki tekst að fjármagna félagið.

En mikið er ég orðin þreyttur á því að alltaf skuli starfsfólkið vera aðal vandamálið þegar illa gengur þegar annað er augljóst. Ég veit til dæmis að nokkrir stjórnarmenn lífeyrissjóða hafa velt því fyrir sér hvort ekki þurfi að setja það sem skilyrði að stjórn og stjórnendum verði skipt út ef skoða eigi þátttöku í hlutafjárútboði.

Ég tel að flestum sé það ljóst að Icelandair verði bjargað með einhverjum hætti og mögulega sé það ekki versti kosturinn verði það gert með sama hætti og með bankana eftir hrun. Það mætti jafnvel skoða að starfsfólkið taki félagið yfir með stuðningi ríkisins og lífeyrissjóða.

En hvernig sem það verður gert munum við tryggja að réttindi og samningar við starfsfólkið verði virt svo sómi sé af.

Vil að lokum senda starfsfólki Icelandair baráttukveðjur. Þið eruð lausnin ekki vandamálið.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: