- Advertisement -

Fækkar fólki eða fjölgar?

Samfélag „Ég ætla að vitna í inngangsorð þáttastjórnanda Sprengisands síðastliðið sunnudag þar sem hann vísar til auglýsingar Vinnumálastofnunar: „Boðin er aðstoð við þá Íslendinga sem vilja fara frá þeirri óáran sem hér ríkir. Fólk er hvatt til að leita sér að betra samfélagi, samfélagi þar sem ríkir meira jafnvægi. Við erum að missa frá okkur stóran og glæstan hóp fólks sem nennir þessu rugli ekki lengur.“ Vissulega er dökk mynd dregin upp,“ þannig hóf Willum Þór Þórsson ræðu á þingi í gær.

Willum sagðist hafa rætt áður á Alþingi um lífskjör og hagtölur, „..hvernig við förum með og túlkum tölulegar staðreyndir, má kalla hagvísa. Á vef Hagstofunnar kemur meðal annars fram að landsmönnum hafi fjölgað um 700 nú á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og þar af fluttust 290 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Það er í takt við síðustu tvö árin þar sem okkur hefur fjölgað, bæði fæddir umfram dána og aðfluttir umfram brottflutta, um tæplega 8.000 manns. Það er vísbending um að það sé eitthvað hingað að sækja. Hér er atvinnu að hafa og það sem meira er hér er meira til skiptanna sem birtist í sókn vinnandi stétta fyrir bættum kjörum,“ sagði Willum.

Gunnar Smári Egilsson skrifaði úttekt um þetta sama. „Samkvæmt Hagstofunni fluttu 800 íslenskir ríkisborgarar frá landinu en 430 til baka á fyrsta ársfjórðungi 2015. Nettóbrottflutningurinn var því 370 manns á þessum 90 dögum; rúmlega ein fjögurra manna fjölskylda á dag. Þetta bendir til að ekkert lát sé á landflótta Íslendinga. Í fyrra fluttu 760 fleiri íslenskir ríkisborgarar frá landinu en til þess. Það var aukning frá árinu áður, 2013; en þá var fjöldinn kominn niður í aðeins 36 og virtist sem samfélagið væri að jafna sig eftir mikinn landflótta í kjölfar Hrunsins. En síðastliðið haust fjölgaði þeim mjög sem fluttu af landinu og sá flótti hefur haldið áfram á fyrstu mánuðum þessa árs.“

Sjá úttekt Gunnars Smára hér.

 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Willum staldraði aftur við útvarpsþáttinn Sprengisand: „Þáttastjórnandinn kallaði eftir því að við hlustuðum, honum til hróss tókst það. Hér ríkir stöðugleiki sem við viljum viðhalda. Hér ríkir jöfnuður og hér er meira til skiptanna og því tækifæri til að bæta lífskjörin og auka jöfnuð enn frekar. Hitt er svo annað mál að vonandi hefur fólk eftir sem áður, og það með fullri virðingu fyrir öllum þeim aðstæðum sem eru uppi, og ástæðum fyrir því að fara erlendis, tækifæri til þess að sækja okkur þekkingu og atvinnu út fyrir landsteinana.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: