- Advertisement -

„Fátækt þekki ég á eigin skinni“

Jódís Skúladóttir Vinstri grænum á Alþingi í dag:

„Það er af mikilli auðmýkt sem ég stend hér í dag og flyt mína jómfrúrræðu. Það eru forréttindi að fá að taka sæti á Alþingi. Ég tek því af mikilli ábyrgð. Ástæðan fyrir því að ég kveð mér hljóðs hér í dag er sú að pósthólfið mitt er yfirfullt af póstum frá fátækum Íslendingum, öryrkjum sem hrópa á aðstoð fyrir jólin. Mig langar að segja við ykkur: Ég sé og ég heyri og ef ég gæti svarað hverjum pósti og ef ég gæti hjálpað hverju og einu þá myndi ég gera það en á því hef ég ekki tök. Ég get hins vegar lagt mig alla fram við að standa með þeim málum sem koma hér inn á þingið til þess að veita þeim brautargengi til þess að við getum lagað stöðuna til lengri tíma. Mig langar að segja ykkur að fátækt þekki ég á eigin skinni. Ég var barnung móðir og ég hef verið notandi að alls konar þjónustu sem venjulegt fólk úti í samfélaginu eins og ég og þið þurfum að nota. Það sem mig langar til að tala um hér í dag er líka það sem er sammerkt með allri þeirri þjónustu sem ég hef þurft að nota sem venjulegur þegn í þessu landi. Elsti sonur minn sem ég eignaðist þegar ég var 14 ára gömul var langveikt barn. Barnaspítalinn er í Reykjavík. Ég er þolandi kynferðisofbeldis. Hjálpin er í Reykjavík. Ég er lögfræðingur að mennt. Ég þurfti að sækja mína menntun til Reykjavíkur. 

Mig langar bara til að segja: Við erum öll hluti af þessu samfélagi en við sem erum af landsbyggðinni búum alltaf við skertan kost. Hér hefur verið talað um að fólk standa í röðum eftir jólamat. Víða á landsbyggðinni eru engar raðir af því að þar er engin hjálp. Þetta var það sem mig langaði að ávarpa í minni fyrstu ræðu.“

Inga Sæland hefur reynt hvað hún getur til að fá rikisstjórnina til að aðstoða þau allra verst settu með því að þau auka desemberuppbót. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vg, svaraði Ingu um þetta mál. Hún varði sig með því að réttast væri að endurskoða allt heila klabbið. Inga svaraði:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Ég þakka hæstvirtum forsætisráðherra fyrir akkúrat ekkert svar, enda bjóst ég nú svo sem ekki við miklu. Ég spurði einfaldlega hvort það ætti að hjálpa þessu fólki núna fyrir jólin.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: