- Advertisement -

Félagar í Sjómannafélaginu: Félagið er eins og sökkvandi skip

Sjómenn vilja fá skrá yfir félagsmenn í Sjómannafélagi Íslands. „Við óskum einnig eftir upplýsingum um hve margir greiða í félagið annars vegar og hins vegar hve margir eru skráðir félagsmenn.“

Nýtt bréf sjómanna til stjórnar Sjómannafélags Íslands:

„Berist til formanns og stjórnar Sjómannafélags Íslands

Eins og formanni og stjórn ætti að vera kunnug um standa sjómenn allan sólarhringinn, alla daga vikunnar við vinnu sína. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að mikil ólga er innan félagsins svo líkja mætti því við skip sem hefur fengið á sig brotsjó. Við slíkar aðstæður þarf mannskapurinn að treysta hver á annan. Það hjálpast allir að, ræða sama og hlusta til þess að lágmarka þann skaða sem hlotist hefur án þess að líta á dagatal eða klukku.  Félagsmenn í Sjómannafélags Íslands gera ekki minni kröfu á forystumenn sína en þeir gera á sig sjálfa svo að afsökun um helgarfrí er ekki tekin gild. Félagið okkar er eins og sökkvandi skip eftir að rangar ákvarðanir hafa verið teknar við björgun, af þeim sem stjórna.

Þar sem óháður aðili var ekki fenginn til að bera saman félagalistann og undirskriftalistann óskum við eftir félagalista félagsins. Við óskum einnig eftir upplýsingum um hve margir greiða í félagið annars vegar og hins vegar hve margir eru skráðir félagsmenn.

Við sjálfir töldum yfir 100 sjómenn á listanum með einfaldri leit á netinu en vitum að sjálfsögðu ekki hve margir af þeim eru félagsmenn í SÍ. Það að listinn hafi komist á flug meðal almennings er vegna frétta af brottvikningu félaga okkur úr SÍ og er ekki okkar sök.

„Það hjálpast allir að, ræða sama og hlusta til þess að lágmarka þann skaða sem hlotist hefur án þess að líta á dagatal eða klukku.“

Að 4 félagsmenn geti farið fram á að einum félaga sé vikið úr félaginu en 8 félagsmenn, sem eru hér undirritaðir, geti ekki óskað eftir almennum félagsfundi lætur okkur líða eins og við séum ekki með rödd í okkar eigin félagi Að lesa fréttatilkynningu Sjómannafélags Íslands í dag veltir upp fleiri spurningum sem við óskum svara við; þið segið sjálfir í tilkynningunni að „Heiðveig María Einarsdóttir hefur að undanförnu gagnrýnt forystu Sjómannafélags Íslands afar harkalega í fjölmiðlum. Hún hefur ítrekað borið fram upplognar sakir á forystu félagsins og skaðað það vísvitandi og því miður áþreifanlegum hætti. Þess vegna var tekin ákvörðun um að vísa henni úr félaginu.“

Ef félagsmenn gagnrýna stjórn félagsins verður þeim þá framvegis vikið úr félaginu?

Hvað sagði hinn brottvikni félagsmaður ósatt um sem réttlætir brottreksturinn?

Í tilkynningunni segir einnig þar sem fjallað er um undirskriftalistann: „Farið er fram með stórlega ýktar eða upplognar staðhæfingar sem standast enga skoðun en rata í stórar fyrirsagnir áður en þær missa flugið og fjara út. Bornar hafa verið ærumeiðandi ásakanir á forystu Sjómannafélags Íslands um klíkuskap, klæki og fantaskap“.

Verður okkur sem nú höfum gagnrýnt forystuna, þó ekki með þessum orðum, vikið úr félaginu?

Einnig viljum við koma á framfæri að Heiðveig María Einarsdóttir stendur ekki að þessum undirskriftalista en eftir viðbrögð formanns og stjórnar félagsins seinustu vikna sjáum við okkur ekki fært að styðja þá stjórn sem nú fer með einræði í félaginu.

Sigurður Jóhann Atlason

Sæþór Ágústsson

Sigurdór Halldórsson

Friðrik Elís Ásmundsson

Davíð Sigurðsson

Rúnar Gunnarsson

Júlíus Jakobsson

Ólafur Ingvar Kristjánsson.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: