- Advertisement -

Finnar, Evrópusambandið og Rússland

Marinó G. Njálsson skrifaði:

„Jæja, nú getur fólk hætt að tala um að erfið staða finnska hagkerfisins sé aðild að ESB og evrunni að kenna. Per Ekström, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu í heimastjórninni á Álandseyjum sem tók virkan þátt í ESB málum í Finnlandi á þessum tíma (1994-95) og veit líklega meira um málið en nokkur Íslendingur sem tjáð hefur sig um það. Hann segir í grein á Vísi:

„Eftir árás Rússlands á Úkraínu 2022 hefur verið lokað á öll viðskipti við Rússa sem hefur leitt til erfiðara efnahagsástands í Finnlandi. Á sama tíma þarf Finnland að leggja mikið fé í varnarmál vegna ástandsins. Meginástæður þessa erfiða efnahagsástands liggja því ekki í aðild Finna að ESB.“

Ég reikna hins vegar ekki með að fólk láti sér segjast og það eigi eftir að birtast greinar, þar sem reynt verður að leiðrétt þennan „missking“ Pers.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tekið skal fram, að Per hefur búið á Íslandi frá árinu 1997.

Í framhjáhlaupi skal þess getið, að Per segir í grein sinn, að ranglega sé fullyrt, að ekki sé hægt að ná í gegn varanlegum undanþágum. Hann hafi reynslu af því að ná fram slíkum undanþágum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: