
Kosningarnar: Sólveig Anna Jónsdóttir skrifaði:
„Þann 29. ágúst fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Spurt verður:
„Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ – hægt er að svara Já eða Nei. Allir íslenskur ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára aldri þegar kosning fer fram og eiga lögheimili á Íslandi hafa kosningarétt í atkvæðagreiðslunni og geta þar sem frjálsir borgarar í lýðræðissamfélagi tekið afstöðu til spurningarinnar.
Það er skrítið að þurfa að segja þetta en það að hafa skoðun og fjalla um hana er ekki barátta gegn lýðræðinu.
Fjölmennur hópur Já-fólks virðist ekki skilja þetta. Þau telja að fólk sem hefur gert upp hug sinn og segist (við megum í landi málfrelsis tala um pólitískar skoðanir okkar hátt og snjallt) á kjördag ætla að krossa við Nei, beiti sér þannig gegn því að þjóðin fái að ráða. Þetta er augljóslega mikil og alvarleg hugsanavilla. Nei-fólk er ekki að beita sér gegn atkvæðagreiðslunni – ætlar þvert á móti að nýta kosningarétt sinn, eins og fólk er yfirleitt hvatt til að gera í aðdraganda kosninga á Íslandi, og taka þátt með því að mæta á kjördag og greiða atkvæði.
Já-fólk virðist telja að annað hvort ætti ekki að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort að hefja skuli á ný viðræður við Evrópusambandið, eða að aðeins sé á atkvæðaseðlinum þann 29. ágúst í boði að krossa við Já.
Það er skrítið að þurfa að segja þetta en það að hafa skoðun og fjalla um hana er ekki barátta gegn lýðræðinu. Fyrirkomulagið lýðræði, þar sem að t.d. er boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu, er ekki krafa um að kjósendur séu allir sammála, heldur samfélagsskipan þar sem að allir megi láta skoðanir í ljós, og þar sem niðurstaða kosninga er virt, hver sem hún er eftir að talið hefur verið upp úr kjörkössunum. Það er ekki andstaða við þjóðaratkvæðagreiðslu að nýta atkvæðisréttinn til að segja Nei; að boðið sé upp á val á kjördag er þvert á móti eitt af mikilvægustu einkennum lýðræðissamfélaga.
Stjórnarflokkarnir hefðu mögulega, áður en þeir ákváðu að boða til atkvæðagreiðslunnar, átt að halda nokkra opna kynningarfundi fyrir borgara lýðveldisins um grunatriði lýðræðisins, í ljósi þess að stór hópur mjög háværs fólks virðist ekki þekkja mest basic atriðin og einkennin.“