- Advertisement -

Flýr Guðlaugur Þór í gamla hreiðrið?

Verður Guðlaugur Þór næsti borgarstjóri?

Stjórnmál: Spennan eykst varðandi hin ýmsu prófkjör. Eitt þeirra er hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Ár og dagar eru síðan flokkur sat í meirihluta í borginni. Þar sem síðasta kjörtímabilið var hreint út sagt algjör fíaskó.

Ósætti er meðal flokksmanna um hversu lengi flokkurinn hefur vermt áhorfendabekkina. Nú telja þau vera lag. Guðrún Hafsteinsdóttir flokksformaður hefur sett flokknum það markmið að komast í meirihluta í höfuðborginni – og helst að hafa þar forystu – það er embætti borgarstjóra.

Hildur Björnsdóttir hefur leitt lista flokksins í tveimur kosningum, 2018 og 2022. Án þess að ná viðunandi árangri. Því er leitað og leitað að öflugri leiðtoga en Hildur virðist vera.

Enn og aftur er staðnæmst við Guðlaug Þór Þórðarson þingmann og fyrrverandi ráðherra og borgarfulltrúa. Guðlaugur Þór var í starfandi í meirihluta sem hafði í kosningum notið góðs af glæstum kosningaárangi Davíð Oddssonar. Svo langur tími er liðinn.

Þegar Guðlaugur Þór var í meirihluta borgarstjórnar var hann til að mynda stjórnarformaður Orkuveitunnar á krítískum tíma í rekstri hennar.

Nú er allt breytt í þinginu. Flokkurinn meira að segja búinn að missa þingflokksherbergið. Nú metur Guðlaugur Þór stöðu sína. Er rétt að fara í borgarslaginn við Hildi? Hann á víst mjög traust bakland í Reykjavík.

Niðurstaðan er sú að Guðlagur Þór fari í borgarslaginn og freisti þess að verða næsti borgarstjóri.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: