Sómakær kona liggur í valnum. Svift mannorði að mati gerendanna. Hún vék úr ráðherraembætti. Brotin á sál og líkama.
Ólöf sem á Moggaklukkuna er titluð „uppljóstrari“ í sumum fjölmiðlum. Hver er uppljóstrunin hennar? Er hún ekki bara meinfýsin kona? Sumt bendir til þess að aðförin að æru Ásthildar Lóu Þórsdóttur hafi verið stýrt af skrímsladeildinni víðfrægu og vondu.
Vitneskjan um son ÁLÞ er ekkert leyndarmál. Það má eflaust finna í Íslendingabók. Hefðu verið flett upp í þeirri gagnmerku bók hefði blasað við að sonur ÁLÞ og föðurins var ekki getin í glæp. Við blasir að aðförinni hafi verið stýrt með þessum „árangri“. Hér er enginn uppljóstrari. Bara alls ekki.
Konan fullyrti og var ekki efast um réttmæti þess sem hún sagði áður en fréttir eru skrifaðar og sagðar. Búmm. Barnið var getið á löglegan hátt. Báðir foreldrar komnir á viðurkenndan aldur.
Áfram verður haldið.
Fingraför Áslaugar Örnu setja sterkan svip á málið. Sómakær kona liggur í valnum. Svift mannorði að mati gerendanna. Hún vék úr ráðherraembætti. Brotin á sál og líkama.
Guðmundur Ingi Kristinsson tók við. Reynt er að gera lítið úr honum þar sem hann er ekki nógu góður í ensku fyrir stjórnarandstöðuna. Guðmundur Ingi gerir sér eflaust grein fyrir að þetta er bara rétt að byrja. Skrímsladeildin er búin að finna veikan hlekk hjá honum. Áfram verður haldið.
Vonandi er Guðmundur Ingi nógu hraustur til að standa árásirnar af sér.
-sme