- Advertisement -

Harka í forystubaráttu Samfylkingarinnar

Keppinautur Péturs um oddvitasætið, borgarstjórinn Heiða Björg Hilmisdóttir, ætlar að nota aðstöðu sína og hefur víst fyrirskipað að starfsmenn borgarinnar…

Umræðan/stjórnmál: Pétur Hafliði Marteinsson, sem sækist eftir að verða pólitískur leiðtogi Samfylkingarinnar í Reykjavík, á eftir að gera hreint fyrir sínum dyrum. Heimildin hefur skrifað um stöðu Péturs. Lesum:

„Pétur Marteinsson sat í stjórn félags sem fór með eignarhlut í lóðauppbyggingu í Skerjafirði þó að hann hafi þverneitað í viðtali við Heimildina í byrjun árs að hann hefði hagsmuni af lóðauppbyggingunni. Hann sagði sig úr stjórn félagsins sama dag og Heimildin spurði hann út í málið, fimm dögum eftir að hann fullyrti í viðtali við blaðamann að hann tengdist verkefninu ekki lengur þar sem annað fyrirtæki hefði leyst til sín lóðirnar. Þá staðfestir Pétur í samtali við blaðamann að hann hafi sent þáverandi borgarstjóra, Einari Þorsteinssyni, skilaboð þar sem þrýst var á að veita verkefninu framgang. Pétur heldur því fram að hann hafi sent skilaboðin í maí eða júní árið 2023 en í svari fyrrverandi borgarstjóra kemur fram að hann hafi átt í reglulegum samskiptum við Pétur fram í febrúar 2024, rúmlega ári eftir að Pétur segist hafa selt frá sér lóðirnar og hafi því ekki átt neinna hagsmuna.“

Þarna stangast dagsetningar á. Sem geta skipt máli í komandi baráttu.

Keppinautur Péturs um oddvitasætið, borgarstjórinn Heiða Björg Hilmisdóttir, ætlar að nota aðstöðu sína og hefur víst fyrirskipað að starfsmenn borgarinnar verði notaðir til að kanna sannleiksgildi fullyrðinga keppinautarins.

Var Pétur Hafliði Marteinsson í stjórn þessa félags allt þar til blaðamaður Heimildarinnar hringdi til hans, til að spyrjast fyrir um aðkomu Péturs Hafliða að eignarhaldsfélaginu. Þann dag var hann víst afskráður sem stjórnarmaður. Ekki fyrr.

Hasar framundan hjá Samfylkingunni.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: