- Advertisement -

Höfnuðu bón þingmanna um lögfræðiálit

„Ég er svolítið hugsi yfir vinnuaðstöðu tiltekinna nefnda hér á þingi þegar upp koma mál af þessu tagi sem gerist reyndar býsna oft. Það eru einhver mál þar sem stjórnvöld þurfa að bregðast við með hraði og þar með þurfa viðkomandi nefndir þingsins að bregðast við með hraði og síðan þingheimur. Það getur, eins og dæmin sýna, reynst býsna dýrkeypt skattborgurum þessa lands ef mistök verða. Það kom lögfræðiálit við þennan gjörning sem hæstvirtur fjármálaráðherra kynnti sem studdi við það. Því lögfræðiáliti var mótmælt af ýmsum aðilum og núna mjög sterklega í öðru lögfræðiáliti sem gengur þvert á það fyrra,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson á Alþingi.

„En í millitíðinni gerist það að beiðni fastanefndar þingsins, sem tekur að lokum afstöðu til þess máls og vinnur með það mál sem kemur inn til þingsins, var hafnað. Bón meirihluta eða tiltekins fjölda þingmannanefndarinnar um lögfræðiálit var einfaldlega neitað. Það er það sem skilur mig eftir vægast sagt hugsi og eiginlega með óþægilega tilfinningu yfir því hvernig verklag við erum farin að viðhafa hér.“

Birgir Ármansson þingforseti sagði: „Forseti vill geta þess að honum er ekki kunnugt um að þingnefndir hafi fengið aðkeypt lögfræðiálit vegna mála sem ekki eru komin til þingsins þannig að það sé sagt.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: