- Advertisement -

Hvar er fluglestin?

Á fundi borgarráðs þann 19. maí 2016 lagði borgarstjóri fram tillögu um að Reykjavíkurborg yrði stofnaðili og hlutafjáreigandi í hlutafélagi um þróun og byggingu mögulegar „hraðlestar.“

Vigdís Hauksdóttir spurði nokkurra spurninga á fundi skipulags- og samgönguráðs í dag.

Vigdís spyr:

 „Stefnt var að því að fluglest myndi byrja að ganga á milli Keflavíkur og Reykjavíkur árið 2025 og var áætlaður kostnaður 100 milljarðar. Áætlað var að lestin myndi mögulega tengjast borgarlínu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Árið 2017 var búið að veita 300 milljónum í verkefnið. Á fundi borgarráðs þann 19. maí 2016 lagði borgarstjóri fram tillögu um að Reykjavíkurborg yrði stofnaðili og hlutafjáreigandi í hlutafélagi um þróun og byggingu mögulegar „hraðlestar.“

Lagði borgarstjóri jafnframt til að Reykjavíkurborg myndi eignast 3% hlut í félaginu með því að leggja inn sem stofnfé þegar framlagðan kostnað við frumskoðun verkefnisins.

1. Hvað hefur Reykjavíkurborg lagt þessu verkefni/Fluglestin

þróunarfélag, til mikið fjármagn tæmandi talið?

2. Hvernig er eignarhlutur Reykjavíkurborgar færður í bókhaldi

borgarinnar?

3. Af hvaða kostnaðarlið var það fjármagn sem lagt var í

verkefnið tekið?

4. Hver er framkvæmdastjóri félagsins í dag?

5. Hverjir skipa stjórn félagsins í dag?

6. Hvenær var síðasti aðalfundur félagasins haldinn?“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: